
Námskeiðið fellur undir Leiðsögunám á háskólastigi, sem er ný námsbraut hjá Endurmenntun HÍ. Inntökuskilyrði eru stúdentspróf eða sambærileg menntun. Námskeiðið, sem mögulegt er að taka hvort sem er í staðnámi eða fjarnámi, er metið til 6 ECTS eininga á grunnstigi háskóla.
Fjallað er um íslenskt nútímasamfélag og þróun þess út frá lýðfræði, landfræði og stjórnmálafræði. Megináherslan er á þjóðfélagið eins og það er í dag og það sem efst er á baugi. Farið er í þróun byggða og svæða ásamt helstu grunnhugtökum íslensks samfélags með áherslu á stjórnskipun þess; Alþingi, mennta- og menningarkerfi, heilbrigðis- og tryggingakerfi, skattkerfi, þjóðkirkjuna og önnur trúfélög ásamt málefni fjölskyldunnar. Fjallað er um velferðarríkið, útrás fyrirtækja, stjórnmálaflokka, kosningar, vinnumarkað, innflytjendur, hlutverk kynjanna og auk þess gerð og hlutverk fjölskyldunnar. Loks verður fjallað um afleiðingar grundvallarbreytinga í efnahagslífi á samfélagsgerðina og stöðu Íslands í ljósi hnattvæðingar.
Nánari upplýsingar hér eða í síma 525-4444.