SAF

Samtök ferðaþjónustunnar

The Icelandic Travel Industry Association



Saga ferðaþjónustunnar
Starfsmanna handbók

Félagsmenn

Notendanafn:
Lykilorð:

Týnt lykilorð

Fréttabréf SAF

Skráðu þig á póstlistann okkar til að frá Fréttabréf SAF sent til þín í tölvupósti

Netfang: *

Nafn:


Aðalfundur SAF 2009

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar var haldinn þ. 27. mars á Grand Hótel Reykjavík  en um tvö hundruð manns sóttu fundinn.  Aðalumræðuefni fundarins var nýsköpun - tækifæri og leiðin til endurreisnar. Árni Gunnarsson, formaður SAF, fjallaði í ræðu sinni m.a. um mikilvægi þess að blása lífi í atvinnustarfsemina og mikilvægi ferðaþjónustunnar í gjaldeyrissköpun. Árni ræddi jafnframt mikilvægi markaðsmála og breytts fyrirkomulags í markaðssetningu. Þá fjallaði Árni um þau verkefni sem SAF hefur fengist við á síðastliðnum tíu árum og það sem áunnist hefur innan samtakanna á tímabilinu. Össur Skarphéðinsson, ráðherra ferðamála, fjallaði um ferðaþjónustuna sem vonarneista við núverandi aðstæður í íslensku efnhagslífi, þá ræddi ráðherra um að meira fé hefði verið varið til ferðamála á föstu gengi en nokkru sinni fyrr og að þetta væri sú atvinnugrein sem þjóðin bindi hvað mestar vonir við hvað atvinnu- og gjaldeyrissköpun varðar. Þá ræddi ráðherra um þær ýmsu stofnanir sem tengdust ferðaþjónustu, m.a. Byggðastofnun og mikilvægi samstarfs þeirra í millum. Ráðherra greindi frá undirritun samnings milli utanríkisráðuneytisins, Ferðamálastofu og Útflutningsráðs um svokallaða Íslandsstofu sem mun annast markaðssetningu landsins og að við það myndu sparast fjármunir með samnýtingu húsnæðis og að því fé yrði þá varið til landkynningar á viðkomandi svæðum. Þorsteinn I. Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands leiddi fundarmenn í gegnum dæmisögu um ferðamáta í ferðaþjónustu 2020 miðað við árið 1980 og ýmsar hugmyndir tengdar nýsköpun í ferðaþjónustu í framtíðinni. Guðmundur H. Gunnarsson, verkefnastjóri MATÍS, fjallaði um nýsköpun í matargerð og þá staðreynd að matur er mikilvæg upplifun sem ferðamenn vilja fá að upplifa á jákvæðan máta og að mikilvægt sé að huga að hráefum í matargerð úr héraði í því sambandi. Þvínæst fjallaði Friðrik V. Karlsson, veitingamaður og félagsmaður í SAF, um matarmenningu sem eina af perlum upplifunar ferðamannsins og ræddi mikilvægi þess að hlúa vel að svæðisbundinni matarmenningu og að muna að geta þess að maturinn sé úr héraði. Hann ræddi jákvæða þróun í matarmennningu sbr. Food and Fun og Fóður og Fjör á landsbyggðinni. Ólafur Ísleifsson, lektor við Háskólann í Reykjavík, fjallaði um núverandi ástand í efnahagsmálum þjóðarinnar sem væri óásættanlegt. Ólafur ræddi miklvægi þess að lækka vexti og að framtíðarskipan gjaldeyris- og peningamála þyldi enga bið, skattalegt umhverfi þyrfti að vera samkeppnisfært og kallaði eftir pólitískri stefnumörkun varðandi gjaldeyrismálin frá stjórnmálaflokkunum. Þá fór fram verðlaunaafhending Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála, sjá nánar hér í lok fréttar. Í lok fundar sköpuðust líflegar umræður um efni fundarins.

Erindi frá aðalfundi :

 Erindi Árna Gunnarssonar hér.

Erindi Össurar Skarphéðinssonar hér.

Erindi  Þorsteins I. Sigfússonar hér

Erindi Guðmundar H. Gunnarssonar hér.

Erindi Ólafs Ísleifssonar hér.

Erindi frá fagnefndarfundum, en fleiri erindi verða birt á heimasíðu SAF innan skamms:

Erindi Ingvars Stefánssonar hér.

Erindi Maríu Guðmundsdóttur hér.

Sjá myndir frá aðalfundi hér.

Sjá myndir frá fagnefndarfundum hér.

Sjá myndir frá kvöldverðarhófi hér.

Ályktanir frá aðalfundi 2009

Á aðalfundi SAF komu fram ýmsar ályktanir.

Ályktun stjórnar SAF hér

Ályktun um ESB hér

Ályktun um hvalveiðar hér

Ályktun um Fjallabak hér

Stjórn SAF næsta starfsár er skipuð sem hér segir* :  

      • Árni Gunnarsson ( Flugfélag Íslands)
      • Friðrik Pálsson (Hótel Rangá)
      • Gunnar Guðmundsson (Guðmundur Jónasson ehf)
      • Ingibjörg Guðjónsdóttir (Íslenskir fjallaleiðsögumenn) 
      • Lára B. Pétursdóttir (Congress Reykjavík)
      • Ólafur Torfason (Reykjavíkurhótel) 
      • Sævar Skaptason (Ferðaþjónusta bænda)

      Fagnefndir

      Afþreyingarnefnd:

      • Ingibjörg G. Guðjónsdóttir,  Íslenskir fjallaleiðsögumenn
      • Eva María Þórarinsdóttir, Hvalaskoðun Reykjavikur
      • Hlynur Snæland, Snæland Grímsson
      • Dagný H. Pétursdóttir, Bláa lónið
      • Stefán Guðmundsson, Gentle Giants

      Bílaleigunefnd

      • Björgvin Njáll Ingólfsson, Hertz bílaleiga
      • Bergþór Karlsson, Höldur - Bílaleiga Akureyrar
      • Gyða Ragnarsdóttir, Átak bílaleiga
      • Pétur Steinn Guðmundsson, Europcar
      • Björn Ragnarsson, Alp-Avis bílaleiga

      Ferðaskrifstofunefnd

      • Þórir Garðarsson, Iceland Excursion - Allrahanda
      • Hildur Jónsdóttir, Farvegur
      • Arngrímur Viðar Ásgeirsson, Ferðaskrifstofa Austurlands
      • Hallgrímur Lárusson, Snæland Grímsson
      • Helgi Eysteinsson, Iceland Travel

      Flugnefnd

      • Einar Björnsson, Flugfélag Íslands
      • Jens Bjarnason, Icelandair
      • Hörður Guðmundsson, Flugfélagið Ernir
      • Lárus Atlason, Air Atlanta
      • Páll Borg, Primera Air

      Gististaðanefnd

      • Sigríður Ingvarsdóttir, Park Inn hótel
      • Ólafur Þorgeirsson, Hótel Borg
      • Sólborg Steinþórsdóttir, Flugleiðahótel
      • Renato Grünenfelder, Fosshótel
      • Rósbjörg Jónsdóttir, Hótel Holt

      Hópbifreiðanefnd

      • Agnar Daníelsson, Kynnisferðir
      • Lárus Sigurðsson, Snæland Grímsson 
      • Gísli Friðjónsson, Hópbílar
      • Rúnar Garðarsson, Allrahanda
      • Ólafur Guðbergsson, SBK

      Veitinganefnd

      • Arnar Laufdal, Broadway
      • Friðrik V. Karlsson, Friðrik V
      • Kristján Daníelsson, Radisson Hótel Saga
      • Sigríður Margrét Guðmundsdóttir, Landnámssetur Íslands
      • Margrét Rósa Einarsdótir, Iðnó

* Úrslit kosninga til stjórnar SAF voru sem hér segir:

Sævar Skaptason  - 17.984

Lára B. Pétursdóttir  - 16.316

Friðrik Pálsson  - 15.643

Ólafur Torfason  - 15.173

Ingibjörg Guðjónsdóttir - 14.727

Gunnar Guðmundsson  - 10.383

Björgvin Njáll Ingólfsson  - 8.820

Marín Magnúsdóttir - 6.733

Ingólfur Haraldsson -5.815

Friðrik Bjarnason - 1.758

Verðlaunaafhending Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála.

Rannsóknamiðstöð ferðamála veitti nú í fjórða sinn 100.000 króna verðlaun fyrir framúrskarandi lokaverkefni um ferðamál sem unnið er af nemanda við háskóla hér á landi. Verðlaunin voru afhent á aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) 2009.  Dómnefnd, sem skipuð er stjórn og forstöðumanni RMF, hefur metið sjö verkefni  skólaársins 2008 sem þóttu afar góð og/eða mjög athyglisverð en þau eru:

Menningartengd ferðaþjónusta – menningarstofnanir Kópavogbæjar. B.Sc. ritgerð Agnesar Sifjar Andrésdóttur frá Viðskipta- og raunvísindadeild Háskólans á Akureyri.

The image of Iceland – Actual summer visitor image of Iceland as a travel destination. MS ritgerð Gunnars Magnússonar í markaðsfræðum og alþjóðaviðskiptum frá viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands.

Mat íbúa Reykjanesbæjar á félagslegum áhrifum Ljósanætur. B.Sc. ritgerð Ingólfs Magnússonar frá land- og ferðamálafræðiskor Háskóla Íslands.

Íslensk tónlist sem landkynning. B.Sc. ritgerð Tómasar Viktors Young frá land- og ferðamálafræðiskor Háskóla Íslands.

Upplifun ferðamanna af akstri um hálendisvegi. BA ritgerð Ingibjargar Eiríksdóttur frá Hólaskóla – háskólanum á Hólum.

Viðhorf heimamanna til nýtingar Látrabjargs til ferðamennsku. B.Sc. ritgerð Ragnhildar Sveinsdóttur frá land- og ferðamálafræðiskor Háskóla Íslands.

Heimavinnsla og sala afurða beint frá býli – mikilvægi íslensks hráefnis fyrir veitingastaði hér á landi. B.Sc. ritgerð Evu Sifjar Jóhannsdóttur frá land- og ferðamálafræðiskor Háskóla Íslands.

Niðurstaða dómnefndar er að verðlaunin í ár hljóti Gunnar Magnússon fyrir MS ritgerð sína Ímynd Íslands – Ímynd raunverulegra sumargesta af Íslandi sem ferðamannastað. Ritgerðina skrifaði hann á ensku og heitir hún þá: The image of Iceland – Actual summer visitor image of Iceland as a travel destination.

Í umsögn dómnefndar segir:

Í verkefni sínu fjallaði Gunnar um ímynd landsins og vörumerki í hugum erlendra gesta sem voru þegar komnir til landsins. Hann lagði upp með að skoða hvort hægt væri að stilla saman markaðssetningu Íslands, Færeyja og Grænlands og gerði þannig samanburð á ímynd þessara landa í hugum gesta hér á landi. Hann notaðist við viðhorfskort sem gert var eftir afstöðu svarenda við fullyrðingum sem settar voru fram í spurningakönnun sem höfundur lagði fyrir sumarið 2008.
 Með sömu spurningakönnun komst Gunnar að því hver ímynd Íslands væri í hugum erlendra gesta. Jafnframt heimfærði hann fullyrðingarnar sem svarendur tóku afstöðu til uppá þá ímynd sem nefnd forsætisráðherra lýsti í skýrslu sinni sem kom út í febrúar 2008 og tók á ímynd Íslendinga á sjálfum sér.     
 Komst Gunnar helst að því að ímynd landsins í hugum gesta einkenndist af öryggi, gestrisni og tækifærum til ævintýra meðal vingjarnlegs heimafólks í einstakri náttúru. Einnig komst Gunnar að því að ekki væri vænlegt til árangurs að stilla saman markaðssetningu Færeyja, Grænlands og Íslands, þar sem löndin hefðu afar ólíka ímynd í huga gesta sem hingað eru komnir. Að auki rökstuddi Gunnar með sannfærandi hætti að Noregur væri okkar helsta samkeppnisland er kæmi að hylli ferðamanna sem hingað eru komnir.
 Dómnefndin telur að þetta verkefni sé verðugt og vandað framhald þeirrar vinnu sem fór af stað með heimsókn Simon Anholt á vegum Viðskiptaráðs Íslands nýverið og nefnd á vegum forsætisráðuneytis. Gunnar tekur af festu og fagmennsku á bæði heimildum um ímyndir og vörumerki áfangstaða og heimfærir uppá vandaða könnun með stóru úrtaki. Þannig leggur verkefnið til hvernig markaðssetning Íslands getur byggt á styrkleikum sem þegar eru í hugum þeirra sem landið sækja heim og jafnframt rökstyður af hverjum má læra og stilla sér upp gagnvart í markaðssetningu landsins.
Verkefni Gunnars er sem áður sagði unnið samviskusamlega af metnaði og fagmennsku og er hann verðugur handhafi verðlauna Rannsóknamiðstöðvar ferðamála árið 2008.
Ritgerðina er hægt að skoða á Landsbókasafni eða kaupa gegnum Stúdentamiðlun v/ Hringbraut (www.studentamidlun.is)
 
Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri og Hólaskóli, ásamt Ferðamálastofu og SAF starfrækja sameiginlega Rannsóknamiðstöð ferðamála, sem er miðstöð rannsókna, fræðslu og samstarfs í greinum sem tengjast ferðamálum.

Mynd : Edward Huijbens, forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála ásamt Gunnari Magnússyni verðlaunahafa.






Samtök ferðaþjónustunnar - Borgartúni 35, 105 Reykjavík -Sími 511 8000 - Símbréf 511 8008 - info@saf.is - Vefstjóri