Framboð til stjórnar SAF 2025: Jóhanna Margrét Gísladóttir

Rafræn atkvæðagreiðsla stendur yfir 13.-20, mars 2025

Jóhanna Margrét Gísladóttir

forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Play

Ég heiti Jóhanna Margrét Gísladóttir og býð mig fram til stjórnar SAF fyrir hönd flugfélagsins PLAY. Ég er menntaður rekstrarverkfræðingur frá Duke háskóla í Bandaríkjunum og hef síðustu 2 ár starfað sem forstöðumaður viðskiptaþróunar PLAY og tekið virkan þátt í vexti félagsins á krefjandi umbreytingartímabili.

Ég hef umfangsmikla reynslu af stefnumótun, markaðssetningu og rekstri, bæði í flugrekstri og hjá stórum íslenskum fyrirtækjum, en ég hef á mínum ferli starfað sem framkvæmdastjóri þróunar hjá Orkunni og þar áður hjá Stöð 2 í um 10 ár fyrst á fréttastofunni þar sem ég fjallaði meðal annars um ferðaþjónustuna en lengst af sem dagskrárstjóri Stöðvar 2.

Hvaða reynslu af störfum í ferðaþjónustu eða SAF kemur þú með inn í stjórnina?

Hjá PLAY hef ég fengið að kynnast hvernig flugrekstur og ferðaþjónusta spila saman í stærra samhengi og hversu mikilvægt er að greinin vinni saman að sameiginlegum markmiðum. PLAY hefur undanfarin ár lagt áherslu á að vinna náið með ferðaþjónustuaðilum, stjórnvöldum og hagsmunasamtökum til að tryggja vöxt og samkeppnishæfni Íslands sem áfangastaðar. Það er ljóst að SAF gegnir lykilhlutverki í að samræma hagsmuni greinarinnar og skapa sterka framtíðarsýn fyrir íslenska ferðaþjónustu.

Hvað eru Samtök ferðaþjónustunnar fyrir þér? Hvernig metur þú stöðu þeirra í dag?

SAF er burðarstoð ferðaþjónustunnar, sem tengir saman fyrirtæki í greininni og vinnur að því að skapa stöðugt og hagkvæmt rekstrarumhverfi. Samtökin standa frammi fyrir mikilvægum verkefnum núna, svo sem að tryggja betri innviði, jafnvægi í ferðamannastraumi, bæði milli árstíða og landshluta, og að efla samkeppnishæfni í alþjóðlegu samhengi.

Ferðaþjónustan er tiltölulega ung atvinnugrein og hefur ekki alltaf verið tekin nógu alvarlega og verið rætt um að ferðaþjónustan skapi ekki mikil verðmæti. Þessu þarf að breyta og leggja þarf áherslu á að stjórnvöld hlúi að ferðaþjónustunni og skapi góðar aðstæður þannig að hægt sé að byggja upp faglega og arðbæra atvinnugrein.

Hvað leggur þú höfuðáherslu á í starfi samtakanna? Er eitthvað sem þér finnst mikilvægt að bæta eða breyta?

Mín áhersla er að efla samkeppnishæfni Íslands sem áfangastaðar, en flugsamgöngur spila þar stórt hlutverk. PLAY hefur sannað að aukin samkeppni skapar fleiri tækifæri fyrir alla ferðaþjónustuaðila og eflir greinina í heild sinni. Mikilvægt er að styðja við áframhaldandi vöxt og tryggja að Ísland sé áfram eftirsóttur áfangastaður.

Einnig finnst mér nauðsynlegt er að vinna að öflugri uppbyggingu innviða og bættu aðgengi. Ferðamenn þurfa að geta notið íslenskrar náttúru og menningar á sem bestan hátt og því skiptir sköpum að innviðirnir standist kröfur og stuðli að sjálfbærni og hagvexti. Við verðum að horfa til framtíðarlausna sem jafna dreifingu ferðamanna um landið og hámarka gæði upplifunar þeirra.

Sjálfbær ferðaþjónusta er lykilatriði í framtíðarstefnumótun. Með skýrri stefnu og skynsamlegum aðgerðum getum við lengt dvalartíma ferðamanna, dreift álagi betur yfir árið og tryggt að ferðaþjónustan skili hámarks virði til hagkerfisins. Ég mun beita mér fyrir því að þróa lausnir sem styðja sjálfbæran vöxt og gagnast bæði fyrirtækjum og samfélaginu í heild.

Ég tel mig hafa skýra sýn á hvar tækifæri ferðaþjónustunnar liggja og vil vinna að því að tryggja henni sterka framtíð. Ég er spennt fyrir tækifærinu til að leggja mitt af mörkum í stjórn SAF og vinna að sameiginlegum markmiðum ferðaþjónustunnar. Ég hlakka til að taka þátt í þessu mikilvæga starfi og vinna með ykkur að því að styrkja og þróa greinina enn frekar.

Allir frambjóðendur til stjórnar SAF 2025: