Framboð til stjórnar 2025: Rannveig Grétarsdóttir

Rafræn atkvæðagreiðsla stendur yfir 13.-20, mars 2025

Rannveig Grétarsdóttir

framkvæmdastjóri Eldingar hvalaskoðunar

Ég heiti Rannveig Grétarsdóttir og er framkvæmdastjóri og einn af eigendum Eldingar hvalaskoðunar, auk þess að vera starfandi stjórnarformaður og einn af eigendum Akureyri Whale Watching. Ég er menntaður rekstrarfræðingur og hef MBA-gráðu.

Árið 2000 stofnaði ég Eldingu ásamt fjölskyldu minni, knúin áfram af ástríðu og trú á framtíðarmöguleikum ferðaþjónustu á Íslandi. Við fórum úr því að vera „verktaka“-fjölskylda í að heillast af ferðaþjónustu með öllum þeim kostum og göllum sem hún hefur.

Hvaða reynslu af störfum í ferðaþjónustu eða SAF kemur þú með inn í stjórnina?

Með um 25 ára reynslu í greininni og setu í fjölmörgum ráðum og nefndum tel ég mig hafa öðlast dýrmæta þekkingu og skilning á þeim fjölbreyttu áskorunum sem ferðaþjónustufyrirtæki standa frammi fyrir – stór og smá, bæði í höfuðborginni og á landsbyggðinni.

Hvað eru Samtök ferðaþjónustunnar fyrir þér? Hvernig metur þú stöðu þeirra í dag?

Það hefur mikið mætt á okkar frábæra formanni og framkvæmdastjóra í viðræðum við nýja ríkisstjórn, og því samtali er ekki lokið. Það skiptir miklu máli að stjórn SAF sé vel að sér í málum, hafi fjölbreyttan bakgrunn og endurspegli sem best ólíkar stærðir og gerðir fyrirtækja í greininni, hvar sem þau starfa á landinu. Ég tel mig hafa ferðaþjónustuhjarta, rek fjölskyldufyrirtæki og hef mikinn skilning á mismunandi rekstri og þeirri umgjörð sem ferðaþjónustan þarf til að blómstra til framtíðar.

Hvað leggur þú höfuðáherslu á í starfi samtakanna? Er eitthvað sem þér finnst mikilvægt að bæta eða breyta?

Við þurfum að halda áfram að vinna að því að skapa rekstrarumhverfi þar sem fyrirtæki geta vaxið á heilbrigðan hátt. Við þurfum að stuðla að sátt og jafnvægi í greininni, auka skilning stjórnvalda og almennings á mikilvægi ferðaþjónustu, fækka árekstrum og sameinast um skýra framtíðarsýn – með sjálfbærni og stöðugleika að leiðarljósi. Meiri fyrirsjáanleiki og skilningur frá stjórnvöldum er lykilatriði.

Ég trúi því að ég geti enn lagt mikið af mörkum í starfi samtakanna og óska eftir stuðningi ykkar til áframhaldandi setu í stjórn SAF næstu tvö árin.

Kæru félagar, ég hlakka til að sjá sem flesta í Hveragerði 20. mars næstkomandi.

Allir frambjóðendur til stjórnar SAF 2025: