Framboð til stjórnar 2025: Stefán Gunnarsson

Rafræn atkvæðagreiðsla stendur yfir 13.-20, mars 2025

Stefán Gunnarsson

framkvæmdastjóri hjá GJ Travel

Ég hef starfað sem forstjóri Guðmundar Jónassonar ehf eða GJTRAVEL frá árinu 2014, en að loknu háskólanámi starfaði ég sem dreifingarstjóri hjá Skeljungi 1994 til 1999. Þá var ég einn af eigendum Mountaineers of Iceland 1999 til 2004 og starfaði svo sem framkvæmdastjóri hjá Jarðböðunum við Mývatn frá 2005 til 2014.

Ég er menntaður tæknifræðingur og að auki með meistaragráðu í alþjóðlegum viðskiptum. Ég er ákaflega vel kvæntur til nærri 35 ára og á tvö börn og þrjú barnabörn.

Hvaða reynslu af störfum í ferðaþjónustu eða SAF kemur þú með inn í stjórnina?

Auk þeirrar víðtæku reynslu sem áður er getið þá átti ég þátt í að stofna Samtök um Heilsuferðaþjónustu árið 2010 og sat þar í stjórn til 2013. Sat í stjórn Sjóbaðanna á Húsavík frá 2011 til 2014 og hef setið í ferðaskrifstofunefnd SAF frá 2023 til dagsins í dag.

Hvað eru Samtök ferðaþjónustunnar fyrir þér? Hvernig metur þú stöðu þeirra í dag?

Það var mikið heillaskref að stofna SAF árið 1998 og fá rödd við stjórnarborð SA. Samtökin standa styrkum fótum og hafa gert sig gildandi í íslensku atvinnulífi.

Hvað leggur þú höfuðáherslu á í starfi samtakanna? Er eitthvað sem þér finnst mikilvægt að bæta eða breyta?

Við þurfum að gæta þess að vera málsvarar allra félagsmanna, ekki síst landsbyggðarinnar, því án hennar væri ferðaþjónustan lítils virði. Í allri okkar hagsmunabaráttu verðum við að vanda okkur, forðast sleggjudóma og hafa allar staðreyndir og tölfræði á hreinu. Þetta finnst mér hafa tekist vel og vil halda áfram á sömu braut.

Allir frambjóðendur til stjórnar SAF 2025: