Rafræn atkvæðagreiðsla stendur yfir 13.-20, mars 2025
Ég er 43 ára fjölskyldufaðir sem býr ásamt eiginkonu og 2 sonum í Garðabæ. Ég er með gráðu í Hagfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. gráðu í fjárfestingastjórnun (e. Investment Management) frá Bayes Business School í London. Ég hef mikinn áhuga á ferðalögum, hugbúnaðarþróun og rekstri fyrirtækja.
Ég bý yfir 14 ára starfsreynslu í ferðaþjónustunni en starfaði þar á undan í fjármálageiranum. Hef verið þeirrar gæfu aðnjótandi að hafa starfað í flugrekstri (2011-2015), hjá bílaleigu (2015-2022) og sem ráðgjafi fyrir hótel. Í starfi mínu hjá Godo (2022-) hef ég snert á ýmsum þáttum sem snúa m.a. að sjálfvirkni í afhendingu á bílaleigubílum, aukinni hagræðingu með notkun Travia og aukinni sjálfvirkni í verðstýringu með notkun gervigreindar.
Megin áhersla undanfarinna ára hef ég byggt upp rekstrarþjónustusvið Godo sem m.a. gerir minni aðilum kleift að ná fram aukinni hagræðingu og bættri samkeppnishæfni. Einnig hef ég haldið námskeið í verðstýringu og er gestafyrirlesari í MIS, samstarfs áfanga HR og Cesar Ritz Colleges.
Eðli ferðaþjónustunnar, skattspor og gjaldeyrisöflun gerir greinina að einni mikilvægustu stoð íslensks þjóðarbús. Samtök Ferðaþjónustunnar spila mikilvægt hlutverk fyrir bæði aðildarfélaga og atvinnugreinina í heild sinni. Ég sé mikil tækifæri felast í frekari uppgang SAF á komandi árum og þá sérstaklega þegar litið er til þess að margföldunaráhrif ferðaþjónustunnar eru klárlega vanmetin í dag, bæði í greiningu og umræðu.
Þar sem að eignadreifing innan ferðaþjónustunnar er langt umfram það sem sést í öðrum stoðgreinum hagkerfisins tel ég það vera mikinn styrk og grundvöll fyrir auknum áhrifum á landsvísu samanber áhrif t.a.m. Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.
Ég var mjög stoltur og hrifinn af herferð og upplýsingaöflun SAF „Staðreyndir um ferðaþjónustu“. Ég tel að þörf sé á frekari aðgerðum í þessa átt til að bæta ímynd greinarinnar út á við. Þegar tilvonandi alþingismenn setja fram hugmyndir um „bann við uppbyggingu hótela til að draga úr þenslu“ eða bann við fleiri baðlónum þá er nokkuð ljóst að mikið verk er fyrir höndum.
Inn á við þarf greinin að horfa til þeirra tækninýjunga sem eru í sjóndeildarhringnum og hvernig rekstrarumhverfi greinarinnar mun breytast hratt á komandi árum. Þar leynast bæði mörg tækifæri til hagræðingar og eins til frekari tekjusköpunar fyrir íslenskt þjóðarbú.
© 2025 SAMTÖK FERÐAÞJÓNUSTUNNAR. Allur réttur áskilinn.