Framboð til stjórnar 2025: Tómas Ingason

Rafræn atkvæðagreiðsla stendur yfir 13.-20, mars 2025

Tómas Ingason

framkvæmdastjóri tekju-, þjónustu- og markaðssviðs hjá Icelandair

Ég heiti Tómas Ingason og er framkvæmdastjóri tekju-, þjónustu- og markaðssviðs hjá Icelandair, og býð mig fram til stjórnarsetu í Samtökum ferðaþjónustunnar. Ég sit í stjórn Orku náttúrunnar og hef gert um fimm ára skeið, er verkfræðingur að mennt og lauk MEng gráðu frá MIT og MBA frá Sloan School of Management í Boston.   

 

Hvaða reynslu af störfum í ferðaþjónustu eða SAF kemur þú með inn í stjórnina?

Starf mitt sem framkvæmdastjóri tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair gefur breiða yfirsýn á ferðaþjónustuna á Íslandi í gegnum samtöl og samvinnu við endursöluaðila okkar um víða veröld, aðgengi að markaðsgögnum og þekkingu starfsfólks okkar úti á mörkuðunum. En ég byggi ekki síður á reynslu minni af því að hafa starfað fyrir minni fyrirtæki í faginu og jafnframt því að hafa komið að stofnun lítils afþreyingarfyrirtækis sem komst ekki á legg eins og gerist og gengur. Í gegnum þessi störf hef ég myndað og ræktað tengsl við fólk, fyrirtæki og stofnanir í geiranum sem upp til hópa eru ótrúlega þrautseigir og skemmtilegir lífskúnstnerar.

Hvað eru Samtök ferðaþjónustunnar fyrir þér? Hvernig metur þú stöðu þeirra í dag?

Ég býð mig fram til stjórnarsetu í Samtökum ferðaþjónustunnar. Ég tel að reynsla mín og þekking muni koma sér vel við að mæta þeim áskorunum og grípa þau tækifæri sem liggja fyrir ferðaþjónustunni á komandi misserum. Í því tilliti horfi ég til þess að mikilvægt er að við höldum áfram eftir skýrri sameiginlegri stefnu og fáum alla hagaðila til að róa í sömu átt, hvort sem það eru einkafyrirtæki, opinber fyrirtæki, stjórnvöld, samtök eða aðrir hagaðilar. Við viljum öll að ferðaþjónustan þroskist og blómstri sem grundvallaratvinnugrein á Íslandi en nú er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að við fylkjum okkur að baki sameiginlegri sýn og vinnum saman að því að auka samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu.

Hvað leggur þú höfuðáherslu á í starfi samtakanna? Er eitthvað sem þér finnst mikilvægt að bæta eða breyta?

Það er ekkert náttúrulögmál að ferðaþjónusta á Íslandi vaxi, dafni og nái þroska á komandi árum. Við erum í harðri samkeppni við áfangastaði sem hafa upp á margt af því sama og bjóða. Við verðum að taka þessari samkeppni alvarlega og bæta okkur á flestum sviðum því annars drögumst við einfaldlega aftur úr. Við þurfum að bæta í markaðssetningu áfangastaðarins okkar, tryggja að álögur á greinina séu til þess fallnar ferðaþjónustan geta vaxið og dafnað öllum til góða og við þurfum að bæta gögn og greiningar á okkar mikilvægu atvinnugrein til að undirbyggja vandaða ákvarðanatöku þeirra sem að henni koma.

Allir frambjóðendur til stjórnar SAF 2025: