Ferðagögn - Skemmtiferðaskip

Hvert er umfang ferðaþjónustu í landshlutum og sveitarfélögum um allt land?

Hve miklar tekjur hefur höfnin mín af skemmtiferðaskipum?

Í mælaborði ferðagagna má finna samantekt um skemmtiferðaskip og áhrif þeirra á nærsamfélagið, eftir höfnum og viðkomustöðum. Þar er meðal annars að finna gögn um komur skemmtiferðaskipa, fjölda farþega og beinar tekjur hafna og sveitarfélaga sem taka á móti skipunum.

Skemmtiferðaskip geta skipt litil nærsamfélög á landsbyggðinni miklu máli, sérstaklega þau sem eru fjær höfuðborgarsvæðinu, þar sem árstíðasveifla er meiri og svæðin jafnvel úr alfaraleið annarra ferðamanna. Farþegar skipanna skapa umsvif fyrir staðbundna þjónustu, leiðsögn, afþreyingu, verslun og veitingastaði, á meðan tekjur hafna og sveitarfélaga styðja við rekstur og uppbyggingu innviða. Gögnin hjálpa til við að meta umfang og dreifingu álags og tækifæra, og styðja markvissari áætlanagerð um móttöku, skipulag og sjálfbæra þróun ferðaþjónustu í nærsamfélögum.

Umsvif skemmtiferðaskipa um allt land

Í mælaborði Ferðagagna er hægt að nálgast helstu  yfirlitsstærðir um ferðaþjónustu á Íslandi. Í mælaborðinu eru tekin saman á einn stað ýmis gögn sem sýna ýmsar stærðir um ferðaþónustu á landinu í heild, í mismunandi landshlutum og alveg niður á einstök sveitarfélög. Grunnhugsunin í mælaborðinu er að ef horft er á hvert einstakt sveitarfélag sem lítið hagkerfi gefi mælaborðið upplýsingar um umfang ferðaþjónustu í því hagkerfi.  

Mælaborðið tekur m.a. saman

Skemmtiferðaskip snerta tugi samfélaga um allt land

Skemmtiferðaskip koma að fjölmörgum höfnum um allt land og farþegar þeirra heimsækja áfangastaði í ólíkum landshlutum. Þannig snerta skipin og farþegarnir tugi nærsamfélaga um allt land, frá stærri þéttbýlisstöðum til minni byggða, og skapa þar umsvif sem annars gætu verið takmarkaðri.

Þessi dreifing skiptir máli fyrir byggðaþróun og staðbundna verðmætasköpun. Um leið kallar breið landfræðileg dreifing á samhæfða áætlanagerð um móttöku, innviði og sjálfbærni, svo ávinningur af skemmtiferðaskipum skili sér sem best til samfélaga víða um land.

Hve margir ferðamenn heimsækja þitt nærsamfélag með skemmtiferðaskipum?

Farþegar skemmtiferðaskipa skipta máli fyrir nærsamfélög um allt land. Þegar skip leggjast að bryggju skapast tækifæri fyrir fyrirtæki á staðnum til að selja afþreyingu, leiðsögn, ferðir, veitingar, verslun og aðra þjónustu, sem styður við fjölbreyttari atvinnutækifæri og styrkir stoðir staðbundins atvinnulífs. Tekjur dreifast þannig betur milli landshluta og geta skipt sérstaklega miklu máli fyrir minni byggðir þar sem hver komudagur hefur sýnileg áhrif á umsvif. Með markvissri móttöku og góðu samstarfi geta skemmtiferðaskip stutt við fjölbreyttari atvinnustarfsemi og þjónustu, aukið svigrúm til fjárfestinga og eflt búsetu og framtíðartækifæri í nærsamfélögum víða um land.

Hve miklar tekjur hefur höfnin í þínu nærsamfélagi af skemmtiferðaskipum?

Tekjur hafna af skemmtiferðaskipum skipta miklu máli fyrir rekstur og þróun innviða í nærsamfélögum um allt land og minnka þrýsting á annan fjárhag sveitarfélaganna. Það er sérstaklega mikilvægt á stöðum þar sem komur eru stór hluti af starfsemi yfir ákveðin tímabil og geta haft skýran staðbundinn efnahagslegan ávinning. Sums staðar hafa sveitarfélög einnig tekjur af komum skipa á viðkomustaði utan hafna.  Þannig geta komur skemmtiferðaskipa stutt bæði hafnir og sveitarfélög og styrkt forsendur fyrir uppbyggingu í nærsamfélögum.

Ahugið að sums staðar í gögnunum eru tekjur hafna í sama sveitarfélagi eða hafnarsamlagi teknar saman í eina tölu

Dokkan: Bókaðar komur skemmtiferðaskipa framundan

Á dokk.is er að finna dagatal með bókuðum komum skemmtiferðaskipa í hafnir um allt land, nokkur ár fram í tímann. Dagatalið byggir á sameiginlegu bókunar- og upplýsingakerfi hafna og umboðsaðila og er uppfært eftir því sem áætlanir breytast. Þannig gefur það skýra mynd af því hvenær búast má við skipum og farþegum í hverri höfn, með fyrirvara um breytingar vegna veðurs, rekstrar eða annarra aðstæðna.

Slík yfirsýn er mikilvæg fyrir nærsamfélög og fyrirtæki í ferðaþjónustu. Hún styður betri áætlanagerð um móttöku, afgreiðslu og þjónustu, hjálpar til við að stýra álagi á áfangastaði og innviði og eykur gagnsæi gagnvart íbúum og hagsmunaaðilum. Betri yfirsýn auðveldar að bregðast við álagi þegar umferð er mest og hámarka ávinninginn af komum skipanna.