Loading Events

« All Events

Konur í ferðaþjónustu hittast

22. apríl @ 16:30 - 18:30

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða konum í atvinnugreininni á hraðstefnumótaviðburð þar sem áherslan er að kynnast, deila reynslu og styrkja tengslanetið. Kvöldið verður byggt upp sem stutt og markviss samtöl þar sem þátttakendur fá tækifæri til að hitta aðrar konur í greininni og ræða málefni sem tengjast starfi þeirra og þróun í faginu.

Viðburðurinn fer fram í Bragganum þann 22. apríl kl. 16.30-18.30 og er skipulagður sem þrjár samtalslotur. Í hverri lotu hittast tvær konur í senn stutta stund og ræða spurningu eða hugkveikju sem sett er fram til að koma samtalinu af stað. Spurningarnar eru hugsaðar sem kveikja að samtali – markmiðið er ekki að fylgja þeim nákvæmlega heldur að skapa rými fyrir opið og áhugavert samtal. Þannig tekur hver kona þátt í 12 samtölum og fær tækifæri til að kynnast fjölbreyttum hópi kvenna úr greininni á stuttum tíma.

Í fyrstu lotunni snúum við okkur að reynslu og styrkleikum í starfi og hvernig leiðir okkar hafa mótast í greininni. Í annarri lotunni verður fókusinn á áskoranir og verkefni sem við stöndum frammi fyrir í dag og hvernig við nálgumst þau í starfi. Í lokin horfum við fram á við og ræðum framtíð, áhrif og þróun – bæði á okkar eigin ferli og í ferðaþjónustunni almennt.

Markmiðið með þessu fyrirkomulagi er að auðvelda þátttakendum að kynnast fleiri konum í greininni á stuttum tíma og skapa samtöl sem geta leitt til nýrra tengsla, hugmynda og samræðna. Við hvetjum þátttakendur til að mæta með opinn hug og forvitni – og vera tilbúnar að deila reynslu, spyrja spurninga og kynnast nýjum sjónarhornum.

Takmarkað sætapláss er á viðburðinn og við hvetjum því áhugasamar til að skrá sig til leiks!

Details

Organizer

Venue