Bein útsending frá fundi Samtaka ferðaþjónustunnar, Markaðsstofu Suðurlands og Markaðsstofu Reykjaness um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Suðurkjördæmi.

Fundurinn fer fram þann 15. október á Hótel Selfossi á Selfossi kl. 17:00-19:00.

Framsögumenn fundarins eru Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF, Frímann Snær Guðmundsson, meðeigandi Deloitte á Íslandi Kristján Pétur Kristjánsson, eigandi KONVIN Hotel, og Haraldur Þór Jónsson, oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps.

Þingmenn Suðurkjördæmis til samtals á fundinum eru Guðrún Hafsteinsdóttir, Sjálfstæðisflokkurinn, Halla Hrund Logadóttir, Framsóknarflokkurinn, Karl Gauti Hjaltason, Miðflokkurinn, Sandra Sigurðardóttir, Viðreisn og Sigurður Helgi Pálmason, Flokkur fólksins, og Víðir Reynisson, Samfylkingin.

Fundarstjórar eru Ragnhildur Sveinbjarnardóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Suðurlands og Þuríður H. Aradóttir Braun, forstöðumaður Markaðsstofu Reykjaness.