Við höfum verið samtaka í 25 ár og við erum sterkari saman!
Láttu okkur vinna fyrir þig
Samtök ferðaþjónustunnar eru sterkasti vettvangurinn sem þú getur nýtt þér til að vinna að þeim breytingum sem þú vilt sjá í íslenskri ferðaþjónustu. Kjarasamningar, samskipti við opinberar stofnanir, fagnefndastarf, fræðsla og fjölbreyttir viðburðir eru meðal þess sem aðild að SAF veitir þér aðgang að.
Fylltu inn í formið hér að neðan til að senda inn umsókn
Með aðild að SAF færð þú aðgang að margs konar þjónustu og ráðgjöf starfsfólks SAF og SA, þar á meðal um allt sem viðkemur starfsmannahaldi og kjarasamningum, rekstur og rekstrarumhverfi fyrirtækja og upplýsingar um styrki til fræðslu og mannauðsmála í fyrirtækinu. Nánari upplýsingar um ávinning aðildar má nálgast hér:
Fylltu inn í umsóknarformið og staðfestu það með rafrænum skilríkjum, og við höfum samband um leið og umsóknin hefur verið samþykkt.
Hefurðu spurningu eða ábendingu um umsóknarformið?