Fólkið í ferðaþjónustunni
Hjarta ferðaþjónustunnar slær um allt land. Hvar sem fólk tekur á móti gestum, kynnir þeim náttúru og menningu Íslands, þar slær ferðaþjónustuhjartað. Fyrir suma er það að sjá sveitina sína lifna við á vorin, fyrir öðrum er það að geta búið á bænum sínum vegna þess að gesti ber að garði, að sjá brosið kvikna á andlitum fólks frá öllum heimshornum þegar þau upplifa víðerni hálendisins í fyrsta sinn, eða smakka á réttum úr íslensku hráefni sem er sótt rétt utan við veitingahússgluggann.
Íslensk ferðaþjónusta er borin uppi af gestgjöfunum, fólkinu um allt land sem lifir og starfar í þessari ótrúlega fjölbreyttu atvinnugrein, þar sem markmiðið er að taka á móti fólki á dýrmætasta tíma þeirra – frítímanum með þeirra nánustu – og skapa ógleymanlega upplifun og minningar. Í því felst fegurðin í ferðaþjónustunni, í brosunum, minningunum, upplifuninni af íslenskri náttúru og ævintýrum um allt land, undir leiðsögn alls konar fólks sem á það sameiginlegt að leggja hjartað í starfið sitt.
Ástríða Evelynar fyrir Íslandi og íslenska hestinum kviknaði út frá sögunum um Nonna og Manna. Í dag er hún ferðaþjónustubóndi á Lýtingsstöðum í Skagafirði og leggur hjartað í að kynna ferðamönnum landið í hestaferðum um náttúruna og taka á móti gestum á Sögusetri íslenska fjárhundsins með sinni einstöku hlýju.
Þegar ég var barn þá var ég að lesa bækurnar um Nonna og Manna og þá kviknaði eiginlega bara ástríða fyrir Íslandi. Og svo voru myndirnar sýndar í sjónvarpinu og þá sá ég, sá ég íslenska hestinn í fyrsta skipti. Svo 1995 þá gafst tækifæri fyrir mig að koma hingað, láta drauminn minn rætast að ríða þvert yfir Ísland.
It’s always been a dream for me, coming to Iceland, and this year I came to make such a trip.
Hér bara leið mér vel og ég bara gat ekki ímyndað mér raun að fara héðan. Þannig að einhvern veginn vissi ég að ég þyrfti bara að vera eftir hér.
En svona að vera bóndi er náttúrulega ekki alltaf mjög auðvelt. En að vera ferðaþjónustubóndi er bara svolítið svona skemmtileg blanda. Þannig að við getum búið hér í sveitinni á okkar bóndabæ, vera bændur, en vera líka ferðaþjónustubændur og taka á móti gestum.
Og svo þegar maður sér hvernig gesturinn er bregðast við þegar maður er að segja frá einhverju, þá fær það bara hjartað til að slá hraðar. Og það gefur manni bara svo mikið að sjá hvernig gestir geta bara gleðjast yfir því sem maður er sjálfur að bara setja inn í að rækta, þú veist, þetta samband milli gests og gestgjafa.
Þú veist, að koma á svona stað, það er það sem bara, þar er hjarta ferðaþjónustunnar.
Elvar fær nokkur þúsund manns á hverju ári inn á hlaðið hjá sér á Hauganesi, þar sem hann segir bestu verðlaunin í hjartað vera að sjá gestina fara brosandi og ánægða eftir upplifunina. Hann fær enn póstkort og tölvupósta frá gestum sem komu fyrir jafnvel aldarfjórðungi síðan, enda skilur upplifunin af landi og þjóð eftir sig ógleymanlegar minningar.
Fyrir örfáum áratugum þá gerðum við ekkert annað hér en að flaka fisk, fletja fisk og salta fisk. Svo byrjar þetta smá saman þannig að fólk vill fá að koma hérna og skoða og við ákváðum að hleypa fólki inn og búa til bara eitthvað úr þessu.
Og það endar þannig að núna erum við að fá nokkur þúsund manns á hverju ári í það sem við köllum factory tour. Og það er svo gaman að sjá þegar fjörutíu manna rúta stoppar kannski hérna á hlaðinu fyrir framan eitthvað lítið fiskhús á Hauganesi. Það er enginn að drepast úr spenningi í rútunni og fólk svona frekar súrt þegar það kemur út. En eftir að við förum með þau hérna í gegn, á þremur korterum eða eitthvað, gegnum factory túrinn að þá fara allir brosandi og glaðir. Og það er þar sem við fáum verðlaunin í hjartað.
Það voru írskar mæðgur sem að komu hérna fyrir tuttugu og fimm árum, voru hérna í íbúð sem ég leigði þeim og þegar þær fara, þá kveðja þær mig svo rosalega innilega með svo miklu þakklæti að ég fór eiginlega bara hjá mér. Ég fæ enn kort tuttugu og fimm árum eftir að ég var með þetta fólk hjá mér, og senda mér svo mail inn á milli bara til að kanna hvort að allt sé í lagi hjá mér og fjölskyldunni. Þetta er bara síðasta kortið sem ég fékk núna um þessi jól. Fallega ljóð og falleg kveðja.
Og akkúrat þetta er það sem mér finnst vera hjartað í íslenskri ferðaþjónustu.
Anton Freyr starfar í ferðaþjónustu af því að hann vill búa í Mývatnssveit og ala börnin sín upp í náttúrunni. Hann leggur hjartað í að skapa ógleymanlegar minningar fyrir gesti í ægifögru umhverfi Mývatns, þar sem hlýlegar móttökur og einstök upplifun fólks af íslenskri náttúru og menningu skipta öllu máli.
Það gengur oft mikið á. Mikið af fólki á staðnum og það er að passa upp á að upplifun allra sé í lagi, og allir búnir að fjárfesta í upplifun og okkar verkefni er að koma henni til skila.
Ég er í þessum bransa af því að hérna, ég ætla að búa í Mývatnssveit. Ég er alinn upp á landsbyggðinni, ég alinn upp í Mývatnssveit. Ég vil ala börnin mín upp í náttúrunni. Ég vil vera úti í náttúrunni og mér finnst gaman að vera með fólki úti í náttúrunni. Þannig að dagurinn minn er fullur af litríkum mómentum.
Dagurinn minn er fullur af alls konar tilfinningum og við erum að sýna fólki hluti sem þau hafa dreymt um að sjá alla tíð. Þú veist venjulegur mánudagur hjá mér byrjar á sólarupprásargöngu á Hverfjall.
En viðskiptavinurinn minn er að labba upp á Eldfjall, á hjara veraldar við heimskautsbaug og fylgjast með sólinni rísa. Kannski alveg einstök stund í lífi fólks. Bara okkar venjulegi mánudagur og það venst í rauninni ekkert.
Ég held að hafi verið miðvikudaginn síðasta, þá var hérna kona sem kom frá Hollandi með tvö börnin sín og tengdason, og þú veist, þau áttu bókaðar alls konar ferðir og ein af þeim var ferð upp á Hverfjall. Hún hafði fengið nýja mjöðm nýlega og var á áttræðisaldri og þetta tekur sinn tíma, þú veist, hægri fótur fram fyrir vinstri fót. En hún hafði sig upp á brúnina og það er eitthvað alveg magnað að standa þarna með þessa konu á áttræðisaldri. Þú veist, hún hafði sjaldan séð, jafnvel aldrei séð fjöll. Og vera með hana uppi á Hverfjallsbrúninni á Hverfjalli þegar sólin kíkir yfir sjóndeildarhringinn og sveitin öll birtist í dagsbirtunni. Og þarna, þarna eru einhver töfrar.
Svo þegar dagurinn var liðinn og næst á dagskrá var að fara í snjósleðaferð. En svona eru dagarnir okkar.
Það er þannig að, þegar að flugin byrja að koma og hjarta sveitarinnar byrjar að slá, þú veist, það vaknar allt til lífsins. Og bara núna á þriðjudag frekar en mánudag sem við vorum í norðurljósasnjósleðaferð. Þú veist við slökkvum öll ljósin og við erum úti í náttúrunni og það kviknar á norðurljósunum. Og þá skellti konan sér á hnén og bað karlsins og það er ótrúlega magnað að fá að vera með í þessu.
Og það er þetta sem að hjartað í íslenskri ferðaþjónustu snýst um.
Helga Nína hóf snemma ferðaþjónustuferilinn sem bílfreyja í rútuferðum um náttúru Íslands. Að fá að taka þátt í því þegar gestirnir stíga út á hálendinu og upplifa kynngimögnuð víðernin í fyrsta sinn fær hjarta hennar til að slá hraðar, því það minnir á hversu ótrúlegt landið okkar er og hversu frábært er að deila því með fólki frá öllum heimshornum.
Fyrst þegar ég byrjaði að vinna hjá SBA Norðurleið þá vann ég sem bílfreyja. Þá voru farnar áætlunarferðir bæði frá Reykjavík og Akureyri yfir Kjöl og á leiðinni var stoppað á nokkrum stöðum þar sem uppáhalds stoppin mín voru Kerlingarfjöll og Hveravellir. Það er eitthvað við hálendið. Kyrrðin, víðáttan og litirnir í landslaginu, en þá var ég fyrst heilluð af Íslandi.
En það sem er svona sterkast í minningunni eru viðbrögð ferðamannanna. Augnablikið þegar fólkið stígur út úr rútunni og, og sér þetta landslag. Það er oft alveg hljótt í smá stund, og síðan kemur brosið. Og þá finnur maður alveg hvað þetta land hefur mikil áhrif á fólk. Og það er einmitt það sem er svo magnað við ferðaþjónustuna, að við erum ekki bara að flytja fólk á milli staða, við erum að skapa minningar sem fólk tekur með sér heim og talar um vonandi alla ævi.
Og það er líka mjög gaman að sjá hvað SBA Norðurleið er búið að vaxa hratt á seinustu árum. Flotinn orðinn stór og á þéttbókuðum dögum er gaman að fylgjast með rútunum okkar á ferðinni. Og þá hugsa ég oft með mér, að þarna á ferðinni er einhver að upplifa Ísland í fyrsta skipti og það er einmitt ástæðan fyrir því að ég elska að starfa í ferðaþjónustunni.