Sveitarstjórnakosningar 2026

Ferðaþjónustan og nærsamfélagið

Ferðaþjónusta styrkir atvinnutækifæri og lífsgæði íbúa í nærsamfélögum

Ferðaþjónusta er ein af grunnstoðum atvinnulífs um allt land og skiptir lykilmáli fyrir lífsgæði, byggðaþróun og fjölbreytt atvinnutækifæri í nærsamfélögum. Fyrir sveitarstjórnarkosningar 2026 er mikilvægt að horfa til þess hvernig skynsamleg stefnumótun og öflugt samstarf við ferðaþjónustu geta stutt við sjálfbæran vöxt, styrkt innviði og aukið verðmætasköpun á hverju svæði. Markviss uppbygging ferðaþjónustu hefur bein áhrif á þjónustu við íbúa jafnt sem gesti og þar með á lífsgæði í sveitarfélögum um allt land.

Styður framboðið þitt uppbyggingu atvinnu, menningar, innviða, þjónustu og lífsgæða?

Ferðaþjónusta í samfélaginu þínu: Lykill að bættum lífsgæðum

Ferðaþjónusta og samfélög landsins eru órjúfanlega tengd. Árangur greinarinnar ræðst ekki aðeins af frammistöðu fyrirtækja heldur einnig af því hvernig tekst að byggja upp traust og samvinnu við nærsamfélög og stjórnvöld á hverjum stað. Þar gegnir sveitarstjórnarstigið lykilhlutverki.

Sveitarstjórnarfólk hefur bein áhrif á umgjörð ferðaþjónustu, t.d. á skipulag, innviði, þjónustu og aðgengi. Á sama tíma hefur ferðaþjónustan áhrif á daglegt líf íbúa á ýmsan hátt, t.d. á atvinnutækifæri, tekjur, þjónustustig og lífsgæði. Því er lykilatriði að samtal sveitarstjórna og ferðaþjónustufólks sé byggt á þekkingu og gagnkvæmum skilningi, enda fara hagsmunir heimafólks og fyrirtækja á viðkomandi svæði iðulega saman.

Þegar sveitarstjórnir þekkja vel til ferðaþjónustu og vinna markvisst með fyrirtækjum í greininni skapast tækifæri til að hámarka ávinning fyrir íbúa. Með samstilltum verkefnum má auka fjölbreytni í atvinnulífi, styrkja innviði og þjónustu sem nýtast bæði gestum og heimafólki, dreifa álagi betur, efla heilsársstarfsemi og stuðla að sjálfbærri nýtingu náttúru og menningar.

Kosningarnar framundan eru mikilvægt tækifæri til að ræða þessi mál af alvöru. Það skiptir máli að frambjóðendur afli sér þekkingar og móti skýra sýn á hlutverk ferðaþjónustu í sínu sveitarfélagi og hvernig hún getur stutt við öflugt og lífvænlegt nærsamfélag. Ferðaþjónustufyrirtæki þurfa að taka virkan þátt í samtalinu, miðla sinni reynslu og byggja upp traust samstarf við kjörna fulltrúa. 

Ég hvet frambjóðendur til að líta á ferðaþjónustu sem samstarfsvettvang og nýta tækifærið til að ræða við rekstraraðila og starfsfólk í greininni. Ég hvet ferðaþjónustufyrirtæki sömuleiðis til að nýta kosningarnar til að eiga opið og uppbyggilegt samtal við sitt nærsamfélag. Með sameiginlegri sýn og traustu samtali getum við skapað sterkara atvinnulíf og betri lífskjör fyrir íbúa í nærsamfélögum um allt land. Það er markmið sem við getum öll sameinast um.

Pétur Óskarsson, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar

Tékklisti sveitarstjórnarfulltrúans

Veistu hvað ferðaþjónusta er mikilvæg í sveitarfélaginu þínu?

Sveitarfélagið þitt er lítið hagkerfi. Hvert er umfang ferðaþjónustu í því hagkerfi?

Ferðagögn Samtaka ferðaþjónustunnar er mælaborð þar sem ýmis svæðisbundin gögn um umsvif ferðaþjónustu í nærsamfélaginu eru sett fram með myndrænum og markvissum hætti. Mælaborðið var áður á vefnum ferdagogn.is en hefur nú verið flutt hingað á vef SAF og framsetning gagnanna uppfærð, þannig að einfaldara er að lesa úr þeim og deila einstökum upplýsingum og gröfum.

Í mælaborðinu eru tekin saman á einn stað gögn sem sýna ýmsar lykilstærðir um ferðaþónustu á landinu í heild, í mismunandi landshlutum og niður á einstök sveitarfélög. Grunnhugsunin í mælaborðinu er að ef horft er á hvert einstakt sveitarfélag sem lítið hagkerfi gefi mælaborðið upplýsingar um umfang ferðaþjónustu í því hagkerfi.  

Mælaborðið tekur m.a. saman

 

Ferðagögn nýtast meðal annars kjörnum fulltrúum á Alþingi og í sveitarstjórnum, starfsfólki í stjórnsýslu og stofnunum og öðrum opinberum aðilum, ásamt rekstraraðilum ferðaþjónustufyrirtækja og fjárfestum til að glöggva sig betur á vægi atvinnugreinarinnar.

Mælaborð Ferðagagna hefur nú verið flutt hingað á vef SAF

Samanburður á sveitarfélaginu þínu og öðrum sveitarfélögum í landshlutanum

Samtök ferðaþjónustunnar hafa takið saman helstu upplýsingar úr ferðagögnum í handhægar glærukynningar sem sýna skýran samanburð milli sveitarfélaga í hverjum landshluta. 

Smelltu á þinn landshluta til að hlaða niður glærukynningu sem sýnir hvernig umfang ferðaþjónustu í þínu sveitarfélagi er í samanburði við nærliggjandi sveitarfélög.

Þar er svarað spurningum á borð við: 

  • Hvað hefur sveitarfélagið miklar beinar skatttekjur af ferðaþjónustu á ári? 
  • Hvað starfa margir í ferðaþjónustu í  sveitarfélaginu?
  • Hvað eru mörg ferðaþjónustufyrirtæki í sveitarfélaginu?
  • Hvað eru margar gistinætur í sveitarfélaginu á ári?
  • Hvernig er árstíðasveifla ferðaþjónustunnar í sveitarfélaginu?

Viltu vita meira um ferðaþjónustu?

Staðreyndir um ferðaþjónustu

Hér fyrir neðan eru fimm Infogram myndir sem hver og ein sýnir fimm staðreyndir um ferðaþjónustu sem tengjast lífskjörum, erlendu starfsfólki, húsnæðisverði, verðbólgu og virðisaukaskatti. Hægt er að skoða hverja mynd í fullri stærð, hlaða þeim niður eða deila á samfélagsmiðlum með því að smella á punktana þrjá sem birtast þegar farið er með músina yfir hverja mynd.

Einnig má hlaða niður pdf skjali með ítarefni sem fer dýpkar upplýsingarnar um hverja staðreynd og gögnin sem byggt er á. 

Nánari upplýsingar um kosningarnar

Á kosningar.is má finna upplýsingar frá stjórnvöldum um sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fara þann 16. maí 2026. Þar má finna upplýsingar fyrir kjósendur, framboð og kjörstjórnir ásamt lögum, reglum og fleiru er snúa að kosningunum

Á lydraedisveislan.is hefur gervigreindin verið nýtt til þess að setja upp myndrænt kort sveitarfélaga til að bera saman á einum stað alla flokka, frambjóðendur og stefnur þeirra. Finndu frambjóðendur í  sveitarfélaginu þínu og ræddu við þau um ferðaþjónustu.