SAF, Markaðsstofa Norðurlands og Austurbrú bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðausturkjördæmi.
Fundurinn fer fram þann 10. nóvember í Hofi, Akureyri kl. 17:00-19:00
Framsögumenn fundarins eru Pétur Óskarsson, formaður SAF, Frímann Snær Guðmundsson, meðeigandi Deloitte, Sigrún Jóhanna Þráinsdóttir, verkefnastjóri hjá Austurbrú, Hilmar Gunnlaugsson, stjórnarformaður VÖK Baths og Aníta Elefsen, safnstjóri Síldarminjasafnsins.
Þingmenn sem verða til samtals á fundinum eru Ingibjörg Ísaksen, Framsóknarflokkurinn, Jens Garðar Helgason, Sjálfstæðisflokkurinn, Logi Einarsson, Samfylkingin, María Rut Kristinsdóttir, Viðreisn, Sigurjón Þórðarson, Flokkur fólksins, og Þorgrímur Sigmundsson, Miðflokkurinn. Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF, stýrir samtalinu.
Fundarstjóri er Halldór Óli Kjartansson, verkefnastjóri hjá Markaðsstofu Norðurlands.