Má bjóða þér stærri sneið?
Ferðaþjónustan á Íslandi er kraftmikil grein sem hefur náð miklum árangri á skömmum tíma. Hún skapar ekki bara störf og tekjur heldur gerir samfélagið okkar skemmtilegra og er grunnurinn að alls konar uppbyggingu hringinn í kring um landið.
Við viljum vinna með stjórnvöldum að því að skapa stöðugt rekstrarumhverfi svo greinin geti blómstrað áfram og þannig skilað enn stærri sneið til samfélagsins.
Með samstilltu átaki stjórnvalda og ferðaþjónustunnar sem miðar að því að stækka ferðaþjónustukökuna fremur en að skera meira af henni. Það gerum við með því að efla heilsársferðaþjónustu, dreifa ferðamönnum betur um landið og hvetja til lengri dvalar og meiri verðmætasköpunar á hvern gest:
Ferðaþjónustan vex sjálfbært um 2-3% á næsta ári ef engar neikvæðar aðgerðir verða að veruleika. Höldum áfram þeirri þróun. Rekstur fyrirtækja getur blómstrað þegar hann býr við stöðugt, fyrirsjáanlegt og samkeppnishæft umhverfi.
Ferðaþjónustan á Íslandi er í stöðugri samkeppni við aðra áfangastaði, sem gerir samstarf stjórnvalda og greinarinnar að algjöru lykilatriði. Við viljum virkja samtal um sameiginlega, markvissa markaðssókn í samræmi við markmið atvinnustefnu stjórnvalda. Ferðaþjónustan setur a.m.k. 8 milljarða á móti 1 milljarði frá ríkinu í markaðherferð. Slíka herferð sjá 50 milljónir manna. Um 100.000 þeirra koma til Íslands sem ferðamenn og rúmlega 8 milljarðar skila sér til baka sem skatttekjur.
Vinnum samkvæmt ferðamálastefnu stjórnvalda og sköpum hvata fyrir ferðamenn til að dvelja að hausti, vori og vetri og nýtum þannig fjárfestingar og innviði með betri og jafnari hætti. Fyrsta markmið væri 10% betri nýting utan háannar sem áætlað er að skili um 8,3 ma.kr.
Tekjur aukast eftir því sem ferðamenn dvelja lengur. Ef 30% ferðamanna dvelja einni nótt lengur eykur það verðmætin frá sama fjölda ferðamanna um u.þ.b. 6 ma.kr.
Ferðaþjónustan aflar í dag um þriðjungs útflutningstekna Íslands og skapar tugþúsundir starfa um allt land. Við hvetjum því stjórnvöld til að leggja áformaðar skattahækkanir á ferðaþjónustu til hliðar og vinna með greininni að raunhæfum valkostum sem skapa meira virði og auka tekjur ríkissjóðs til lengri tíma, án þess að veikja eina mikilvægustu útflutningsgrein þjóðarinnar.
Með samstarfi, fyrirsjáanleika og markvissri sókn getum við skapað meira verðmæti, tryggt blómlega ferðaþjónustu um land allt og aukið tekjur samfélagsins.