Ný stjórn kjörin á aðalfundi SAF 2023

Stjórn SAF 2023

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar árið 2023 fór fram í Stykkishólmi fimmtudaginn 30. mars.

Í aðdraganda aðalfundar fór fram rafræn kosning meðal félagsmanna um 3 meðstjórnendur í stjórn SAF til næstu tveggja ára. Rannveig Grétarsdóttir, eigandi Eldingar og Akureyri Whale Watching, Helgi Már Björgvinsson, yfirmaður alþjóðasamskipta hjá Icelandair og Nadine Guðrún Yaghi, forstöðumaður samskipta og þjónustu hjá Play hlutu kjör í stjórn SAF til næstu tveggja ára.

Ásamt þeim sitja í stjórninni þau Bjarnheiður Hallsdóttir, framkvæmdastjóri Kötlu-DMI og formaður SAF, Ragnhildur Ágústsdóttir, stofnandi og eigandi Lava Show, Sævar Guðjónsson, framkvæmdastjóri Ferðaþjónustunnar Mjóeyri við Eskifjörð og Björn Ragnarsson, framkvæmdastjóri Icelandia.

Úr stjórninni gengu þau Birgir Guðmundsson, hótelstjóri Hilton Reykjavik Nordica, Jakob Einar Jakobsson, framkvæmdastjóri veitingahússins Jómfrúarinnar og Ásdís Ýr Pétursdóttir, forstöðumaður samskipta og samfélagsábyrgðar Icelandair. Eru þeim færðar góðar þakkir fyrir vel unnin störf á vettvangi samtakanna á liðnum árum.

Stjórn SAF 2023
Stjórn SAF 2023: Ragnhildur Ágústsdóttir, stofnandi og eigandi Lava Show, Björn Ragnarsson, framkvæmdastjóri Icelandia, Bjarnheiður Hallsdóttir, framkvæmdastjóri Kötlu-DMI og formaður, Rannveig Grétarsdóttir, eigandi Eldingar og Akureyri Whale Watching, Helgi Már Björgvinsson, yfirmaður alþjóðasamskipta hjá Icelandair og Nadine Guðrún Yaghi, forstöðumaður samskipta og þjónustu hjá Play. Á myndina vantar Sævar Guðjónsson, framkvæmdastjóra Ferðaþjónustunnar Mjóeyri við Eskifjörð.

Tengdar fréttir

Samtök atvinnulífsins og aðildarsamtök hafa opnað fyrir tilnefningar til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins 2025. Hvetja samtökin aðildarfyrirtæki til að senda inn tilnefningar eigi síðar …

Vesturland sótt heim

Á dögunum gerðu Samtök ferðaþjónustunnar víðreist um Vesturland þar sem formaður og starfsfólk samtakanna hittu fyrirtæki í ferðaþjónustu, forystufólk í sveitarstjórnum og …

Fjöldi kvenna í ferðaþjónustu komu saman í Gamla kvennaskólanum sl. miðvikudag til þess að fagna upphafi verkefnisins Konur í ferðaþjónustu sem Samtök …

Samtök ferðaþjónustunnar hafa skilað umsögn til forsætisráðuneytisins um áform um atvinnustefnu Íslands til 2035, sem kynnt voru í Samráðsgátt stjórnvalda 11. ágúst. …

Eitt ár er þar til Íslendingar upplifa almyrkva á sólu í fyrsta sinn síðan 1954. Um sögulegan atburð er að ræða því …

Evrópusambandið hefur undanfarin ár unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System(skammstafað EES). …