Nýtt skráningarkerfi ferðamanna (ENTRY/EXIT System) tekur gildi 12. október 2025

Evrópusambandið hefur undanfarin ár unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System(skammstafað EES). Nú hefur verið tilkynnt að innleiðing skráningarkerfisins muni hefjast þann 12. október 2025 á öllum ytri landamærum Schengen-svæðisins, þar á meðal á landamærum Íslands.

Kerfið mun leysa af hólmi handstimplun vegabréfa og færa skráningu komu og brottfarir ferðamanna til og frá ríkjum utan Schengen yfir í stafrænt form.

Samevrópskt kynningarefni er tilbúið til dreifingar

Evrópusambandið hefur útbúið samræmt kynningarefni um Entry/Exit kerfið og það er nú aðgengilegt félagsmönnum SAF á 26 tungumálum sem ættu að hafa fengið niðurhalstengil í pósti. SAF hvetja aðildarfyrirtæki til að nýta efnið vel í samskiptum við viðskiptaaðila sína.

Hvað er Entry/Exit kerfið og hvernig virkar það?

Kerfið skráir sjálfkrafa helstu upplýsingar um ferðamanninn, þ.e. nafn, fæðingardag, vegabréfanúmer, fingraför og andlitsmynd, þegar hann fer um ytri landamæri Schengen. Markmið skráningarinnar er að flýta fyrir afgreiðslu á landamærum, bæta öryggi og tryggja nákvæma skráningu um hvenær ferðamenn koma og fara, sem hjálpar til við að koma í veg fyrir ólöglega yfirveru.

Kerfið tekur aðeins til borgara utan Evrópska efnahagssvæðisins og Sviss sem ferðast til eða frá Schengen.

Innleiðing á Íslandi hefst 12. október 2025

Ísland, sem aðili að Schengen-samstarfinu, tekur þátt í innleiðingu frá 12. október 2025. Samkvæmt ákvörðun Evrópusambandsins verður innleiðingin stigvaxandi og gert er ráð fyrir að henni verði að fullu lokið að sex mánuðum liðnum

  • Frá 12. október 2025: Aðeins lítið hlutfall farþega fer í gegnum EES kerfið við brottför.
  • Hlutfallið hækkar smám saman næstu sex mánuði þar til 100% innleiðing næst.
  • Fyrstu mánuðina verður kerfið einungis í notkun á Keflavíkurflugvelli.
  • Að sex mánuðum liðnum verður það komið í gagnið á öllum ytri landamærum Íslands.

Hvað þurfa aðildarfélög SAF að hafa í huga?

Breytingin mun hafa áhrif á ferðaupplifun margra viðskiptavina íslenskrar ferðaþjónustu. Ferðaþjónustufyrirtæki þurfa því að kynna sér nýju reglurnar og tryggja að starfsfólk sé vel upplýst. Þá er mikilvægt að gera ráð fyrir að upplýsa þurfi erlenda viðskiptavini um breytingarnar áður en þeir ferðast til eða frá landinu og vera undirbúin fyrir mögulegar tafir fyrstu vikurnar þar sem kerfið verður tekið í notkun í bland við núverandi ferla.

ATHUGIÐ: Mikilvægt að aðskilja annars vegar Entry/Exit landamærakerfið sem mun taka gildi 12. október 2025, og hins vegar ETIAS ferðaheimildakerfið sem áætlað er að taki ekki gildi fyrr en á fjórða ársfjórðungi 2026.

Upplýsingasíða Evrópusambandsins um Entry/Exit kerfið

Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Norðurlands og Austurbrú bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðausturkjördæmi. Fundurinn fer fram þann …

Íslensk ferðaþjónusta setti svip á World Travel Market (WTM) sem fór fram í ExCeL-sýningarhöllinni í London dagana 3.–5. nóvember. Fulltrúar SAF sóttu …

Umhverfisdagur atvinnulífsins fór fram þann 27. október á Hótel Reykjavík Grand en í ár var sjónum beint að sérstöðu Íslands og mikilvægi …

Samtök ferðaþjónustunnar vekja athygli á neðangreindri lokaráðstefnu Evrópuverkefnis um örvottanir fyrir örnám í tengslum við ferðaþjónustu. Á lokaráðstefnunni, sem fram fer í …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …