Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru stjórnvöld helsta hindrun ferðaþjónustunnar? sem fór fram á Hótel Selfossi á fimmtudaginn var. Fundurinn var einnig í beinni útsendingu, en upptöku má finna hér.
Fundurinn var haldinn á vegum Samtaka ferðaþjónustunnar, Markaðsstofu Suðurlands og Markaðsstofu Reykjaness.
Víðtæk áhrif aukinni álaga
Frímann Snær Guðmundsson meðeigandi hjá Deloitte kynnti greiningu sem unnin var fyrir SAF. Í erindi hans kom fram að áætlaðar skatta- og gjaldahækkanir sem snerta ferðaþjónustuna 10,7 milljörðum króna, sem jafngildir rúmlega helmingi af hagnaði greinarinnar árið 2024. Sérstaklega var fjallað um fyrirhugaða hækkun virðisaukaskatts á baðlón, náttúru- og innviðagjald og hækkun kílómetragjalds.
Næst tók Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF, til máls og fjallaði um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi, sem og stóra samhengi greinarinnar í efnahagi landsins. Hann lagði áherslu á að stjórnvöld ættu fremur að skapa skilyrði fyrir aukinni verðmætasköpun en að þrengja að rekstri fyrirtækja með frekari álögum.
„Ef við stækkum þessa köku, þá fær ríkið stærri sneið,“ sagði Jóhannes Þór og benti á Ferðaþjónustukökuna sem gestir fundarins gæddu sér á. Þá kom Jóhannes Þór inn á tækifæri til að auka tekjur ríkissjóðs með lengri dvöl ferðamanna og öflugri markaðssetningu.
Kristján Pétur Kristjánsson, eigandi KONVIN Hotel, og Haraldur Þór Jónsson, oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps, lýstu áhrifum aukinnar skattheimtu á fyrirtæki og nærsamfélög. Báðir lögðu áherslu á mikilvægi fyrirsjáanleika, samráðs og þess að stjórnvöld horfðu til heildaráhrifa fyrirhugaðra breytinga á ferðaþjónustuna.
Þingmenn Suðurkjördæmis kallaðir til svara
Í pallborðsumræðum tóku þingmenn Suðurkjördæmis úr bæði stjórnarflokkum og stjórnarandstöðu þátt í líflegu samtali um stöðu ferðaþjónustunnar, samkeppnishæfni greinarinnar og fyrirhugaðar skattabreytingar.
Ólíkar áherslur komu fram meðal þingmanna. Fulltrúar stjórnarflokkanna lögðu meðal annars áherslu á nauðsyn þess að ná jafnvægi í ríkisfjármálum og fjármagna innviðauppbyggingu, en þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu fyrirhugaðar hækkanir og lýstu áhyggjum af áhrifum þeirra á atvinnulíf og byggðaþróun.
Fundargestir létu jafnframt vel í sér heyra og beindu spurningum til þingmanna. Meðal annars var óskað eftir afdráttarlausum svörum um hvort þeir myndu samþykkja hækkun virðisaukaskatts á baðlón og fyrirhugað náttúru- og innviðagjald óbreytt. Þá var kallað eftir því að þingmenn stæðu vörð um hagsmuni ferðaþjónustunnar og kjördæmisins við þinglega meðferð málanna.
Kallað eftir raunverulegu samráði og skýrari svörum
Áhrif fyrirhugaðs náttúruinnviðagjalds á Gullna hringinn voru sérstaklega til umræðu á fundinum. Fulltrúar ferðaþjónustunnar bentu á að ný gjaldtaka gæti hækkað verulega verð á skipulögðum ferðum og dregið úr samkeppnishæfni fyrirtækja.
Fulltrúar sveitarfélaga lýstu jafnframt áhyggjum af skorti á samráði við undirbúning breytinganna. Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri Bláskógabyggðar, gagnrýndi meðal annars að sveitarfélög og fyrirtæki þyrftu að leita svara hjá mörgum ráðuneytum án þess að fá heildstæða mynd af fyrirhuguðum aðgerðum.
Þá var spurt hvernig tryggja ætti að tekjur af nýjum gjöldum skiluðu sér í uppbyggingu innviða og hvernig fyrirhugaðar breytingar myndu hafa áhrif á rekstur Þingvallaþjóðgarðs.
Þingmenn tóku undir mikilvægi fyrirsjáanleika og samráðs, en ólíkar áherslur komu fram um útfærslu gjaldtökunnar og framhald málsins. Rætt var um mögulegar breytingar í þinglegri meðferð, meðal annars aðrar leiðir til innheimtu gjalda og víðtækari nálgun við fjármögnun innviða.
Skýr krafa fundargesta var að stjórnvöld hlusti á sjónarmið greinarinnar og meti heildaráhrif fyrirhugaðra breytinga áður en ákvarðanir séu teknar. Ferðaþjónustan þurfi stöðugt og fyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi til að geta haldið áfram að skapa störf, fjárfesta og byggja upp verðmæti í kjördæminu.
Aðstandendur fundarins þakka fyrir kröftugan fund og benda áhugasömum á að næsti fundur fundarraðarinnar Mótvindur fer fram á Borgarnesi þann 22. október.




