Mótvindur: eru stjórnvöld helsta hindrun ferðaþjónustunnar? | Skattspor ferðaþjónustunnar árið 2025 kynnt

Samtök ferðaþjónustunnar og Samtök atvinnulífsins bjóða leikum og lærðum á síðasta viðburð fundarraðarinnar Mótvindur sem SAF og samstarfsaðilar hafa staðið að um víða um land í október og nóvember. Hægt er að kynna sér fundarröðina og horfa á upptökur fyrri funda hér.
Fundurinn fram miðvikudaginn 18. nóvember kl. 14.00 – 17.00 í Sjálfstæðissalnum á Parliament Hotel við Austurvöll. Þá verður bein útsending frá fundinum á vef SAF.

DAGSKRÁ

  • Magnús Árni Skúlason, hagfræðingur og framkvæmdastjóri Reykjavík Economics, kynnir skattspor ferðaþjónustunnar árið 2025.
  • Rannveig Grétarsdóttir, eigandi Elding hvalaskoðunar og stjórnarkona SAF, flytur ávarp.
  • Almar Guðmundsson, formaður Sambands íslenskra sveitafélaga og bæjarstjóri Garðabæjar, Jón Ólafur Halldórsson, formaður SA og Lovísa Anna Finnbjörnsdóttir, forstjóri og meðeigandi Deloitte á Íslandi taka þátt í sófaspjalli um efnahagsleg og samfélagsleg áhrif ferðaþjónustunnar og áhrif skatta og gjalda á greinina. Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF, leiðir samtalið.
  • Seinni hluti fundarins verður helgaður samtali við fulltrúa stjórnmálaflokkanna um þau stóru mál sem liggja nú fyrir Alþingi og snerta ferðaþjónustuna. Umræðustjóri er Skapti Örn Ólafsson, upplýsingafulltrúi SAF.
    Þingmenn sem taka þátt í umræðum: Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, Miðflokki, Pawel Bartoszek, Viðreisn, Hildur Sverrisdóttir, Sjálfstæðisflokki, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, Sigurjón Þórðarson, Flokki fólksins, Guðmundur Ari Sigurjónsson, Samfylkingu.

Að lokinni dagskrá bjóða SAF og SA til móttöku í anddyrinu á Parliament Hotel þar sem léttar veitingar og netagerð verða á boðstólnum.

Fundarstjóri er Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri SA.