Skatttekjur af ferðaþjónustu voru 230 milljarðar króna árið 2025

Skattaleg áhrif einkennandi greina ferðaþjónustunnar námu 199,7 milljörðum króna árið 2025 og lækkuðu um 2,6% að raunvirði frá fyrra ári. Spáð er 2,2% lækkun til viðbótar á þessu ári. Á sama tíma boðar fjárlagafrumvarp 2027 nýjar álögur á greinina sem nema um 10,4 milljörðum króna á fyrsta ári.

Þetta eru meginniðurstöður nýrrar skýrslu Reykjavik Economics sem unnin var fyrir Samtök ferðaþjónustunnar og Samtök atvinnulífsins, en þetta er fjórða árið sem skattaleg áhrif greinarinnar eru reiknuð. Niðurstöðurnar voru kynntar á fundi samtakanna á Parliament Hótel 18. nóvember, þeim síðasta í fundaröð SAF, „Mótvindur: Eru stjórnvöld helsta hindrun ferðaþjónustunnar?“.

Lægri tekjuskattur og launaliðir

Í þröngum skilningi námu skattalegu áhrifin 109,0 ma.kr. og lækkuðu um 6,6% að raunvirði. Launatengdir liðir lækkuðu að raunvirði, einkum vegna þess að Hagstofa Íslands endurskoðaði launakostnað ársins 2024 úr 286 í 293,2 ma.kr. Staðgreiðsluskyldur launastofn greinarinnar jókst hins vegar um 5,7% á árinu.

Ma.kr., verðlag 202520242025Raunbreyting
Þröng skattaleg áhrif116,7109,0−6,6%
Útskattur virðisaukaskatts83,485,62,6%
Fasteignaskattar5,05,24,5%
Víð skattaleg áhrif205,0199,7−2,6%

Ferðamaðurinn greiðir virðisaukaskattinn

Útskattur virðisaukaskatts nam 85,6 ma.kr. og er talinn að fullu þar sem virðisaukaskattur leggst á endanlegan neytanda, ferðamanninn, þannig að krónur sem greiddar eru í VSK af ferðamönnum skila sér að lokum sem skatttekjur í ríkissjóð. Miðað við hlut erlendra ferðamanna í neyslu greinanna, 58,8%, má rekja um 117 ma.kr. skattalegra áhrifa til þeirra.

Stærsta útflutningsstoðin en veik eiginfjárstaða

Tekjur af erlendum ferðamönnum námu 646 ma.kr. árið 2025 og ferðaþjónustan er því stærsta útflutningsstoð landsins. Hún var jafnframt eina stoðin sem óx að raunvirði frá 2022 til 2025, um 18,7%, á meðan útflutningstekjur af áli drógust saman um 34,1% og af sjávarafurðum um 17,2%. Þá hefur framleiðni í gisti- og veitingarekstri aukist um 18,8% frá 2019, en um 5,2% í hagkerfinu öllu.

Efnahagur greinarinnar er hins vegar viðkvæmur. Eiginfjárhlutfall einkennandi greina ferðaþjónustunnar var 25,4% í árslok 2025 en 44,2% í viðskiptahagkerfinu og hagnaður nam 3,1% af rekstrartekjum á móti 7,0% í atvinnulífinu almennt. Raungengi krónunnar var í september hærra en í 98,9% mánaða frá 1980. Tekjur af erlendum ferðamönnum lækkuðu um 8,9% að raunvirði á fyrri helmingi ársins 2026, þótt brottförum fækkaði aðeins um 0,9%.

30 milljarða tekjur að auki af sértækri skattheimtu af ferðaþjónustu

Þessu til viðbótar greiða ferðamenn og ferðaþjónustufyrirtæki að minnsta kosti 29,4 ma.kr. á ári í sértæka skatta og gjöld, svo sem gistináttaskatt, hafnargjöld, farþegagjöld, þjónustugjöld þjóðgarða og flugvallagjöld, sem ekki eru talin með í skattalegum áhrifum og bætast því við heildarskatttekjur af ferðaþjónustu.

Samkvæmt mati Reykjavik Economics leggjast um 10,4 ma.kr. í nýjar álögur á ferðaþjónustuna á fyrsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpi 2027 og eftir breytingarnar munu sértæk gjöld og nýjar álögur því nema samtals um 40 ma.kr. á ári.

Að mati skýrsluhöfunda virðist tekjumat frumvarpsins vera stöðumat sem gerir ráð fyrir að ferðamenn bregðist ekki við hærra verði. Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum Reykjavik Economics skila um 80% af framreiknuðu tekjumati sér til hins opinbera á árunum 2027–2035, eða 73,9 af 92,1 ma.kr. Á móti tapast 89,4 ma.kr. í útflutningstekjum. Það þýðir að 1,21 kr. tapast fyrir hverja krónu sem hið opinbera fær. Til samanburðar myndi vöxtur í takt við langtímaspá IATA fyrir Evrópu, um 2,5% á ári, skila hinu opinbera svipuðum tekjum, 73,7 ma.kr., án nýrrar gjaldtöku.

Tekjumat vegna baðlóna jafngildir því að um 69% af allri veltu baðstaða sé aðgangseyrir, þótt stærstu lónin reki einnig hótel, veitingastaði og verslun. Verði skattinum velt að fullu út í verðlag hækkar aðgangseyrir um 11,7%.

Áhrif nýrrar skattheimtu neikvæðust á byggðir fjær höfuðborginni

Nýju tekjurnar innheimtast einkum innan 200 km frá höfuðborgarsvæðinu, þ.e. á Gullna hringnum og í baðlónum á suðvesturhorninu. Samdrátturinn gæti hins vegar orðið mestur á fjarlægari áfangastöðum. Miðað við forsendur Reykjavik Economics dregst eftirspurn saman um 1,3% næst höfuðborginni, um 2,1% á Suðurlandi en 4,2% á fjarlægari áfangastöðum. Samdrátturinn gæti numið 10,7% á fjarlægari svæðunum ef krónan styrkist einnig.

Í skýrslunni er bent á að ferðamaður sem styttir ferð sína vegna verðs sleppi fjærstu áfangastöðunum fyrst. Þannig leggist kílómetragjaldið um fimmfalt hærra á ferð til Egilsstaða en um Gullna hringinn. Reynslan af innviðagjaldi á skemmtiferðaskip sýnir jafnframt að viðbrögðin geta orðið hröð, en Cruise Iceland áætlar að skipakomum fækki um 27% árið 2027 frá 2024.

Lækkun skattalegra áhrifa annað árið í röð er líkleg

Reykjavik Economics spáir því að skattaleg áhrif greinarinnar nemi 195,3 ma.kr. árið 2026, á bilinu 190,5–199,5 ma.kr. Það yrði 2,2% lækkun að raunvirði, annað árið í röð. Spáin verður uppfærð í desember.

Skýrsla Reykjavík Economics um skattaleg áhrif ferðaþjónustu 2025 | Útdráttur niðurstaðna skýrslunnar í glærukynningu

Tengdar fréttir

Skattaleg áhrif einkennandi greina ferðaþjónustunnar námu 199,7 milljörðum króna árið 2025 og lækkuðu um 2,6% að raunvirði frá fyrra ári. Spáð er …

Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) skora á ríkisstjórnina að hlusta á raunverulegar áhyggjur fólks sem starfar í ferðaþjónustu um land allt og endurskoða boðaðar …

Mótvindur: eru stjórnvöld helsta hindrun ferðaþjónustunnar? | Skattspor ferðaþjónustunnar árið 2025 kynnt Samtök ferðaþjónustunnar og Samtök atvinnulífsins bjóða leikum og lærðum á …

Íslensk ferðaþjónusta setti svip á World Travel Market (WTM) sem fór fram í ExCeL-sýningarhöllinni í London dagana 3.–5. nóvember. Fulltrúar SAF sóttu …

Umhverfisdagur atvinnulífsins fór fram þann 27. október á Hótel Reykjavík Grand en í ár var sjónum beint að sérstöðu Íslands og mikilvægi …

Samtök ferðaþjónustunnar vekja athygli á neðangreindri lokaráðstefnu Evrópuverkefnis um örvottanir fyrir örnám í tengslum við ferðaþjónustu. Á lokaráðstefnunni, sem fram fer í …