Mótvindur

Ferðaþjónustudagar 2026

Eru stjórnvöld helsta hindrun ferðaþjónustunnar?

Samtök ferðaþjónustunnar og markaðsstofur víða um land bjóða til fundarraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember 2026 undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru stjórnvöld helsta hindrun ferðaþjónustunnar?

Fundarröðin fer fram á mikilvægum tímapunkti en á Alþingi liggja nú fyrir stór mál sem snerta ferðaþjónustuna með beinum hætti og geta haft veruleg áhrif á rekstrarskilyrði greinarinnar og atvinnulíf um allt land. Þar má meðal annars nefna skattahækkanir á baðlón, krónutöluhækkanir á gistináttaskatti og innviðagjaldi ásamt frumvarpi til laga um náttúru- og innviðagjald, svokallaðan náttúrupassa. Þetta eru ekki aðeins málefni ferðaþjónustunnar. Þau snúa að atvinnu, fjárfestingu, samkeppnishæfni og byggðaþróun um land allt.

Fyrri hluti fundanna verða helgaðir erindum frá Samtökum ferðaþjónustunnar og markaðsstofum landsbyggðarinnar sem hverfast um ferðaþjónustu í viðkomandi kjördæmi. Þá mun Deloitte kynna niðurstöður á greiningu sem fyrirtækið hefur unnið fyrir SAF um áætlaðar skatta- og gjaldahækkanir á ferðaþjónustu sem liggja fyrir í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar.

Seinni hluti fundanna verða vettvangur beinna samtala við þingmenn kjördæmanna um þau mál sem nú eru efst á baugi hjá ferðaþjónustunni.

Á staðnum eða í streymi?

Staðfundir fara fram á Selfossi, í Borgarnesi, á Akureyri og í Reykjavík en fundunum verður einnig öllum streymt í beinni í útsendingu hér á vef SAF. Þau sem hafa hug á að mæta á staðfundi eru beðin um að skrá sig. Ekki þarf að gera slíkt ef áhugasamir ætla að horfa á streymi en við hvetjum fólk til að setja fundinn í dagbókina engu að síður.

Bein útsending: Fylgstu með, hvar sem hentar þér best!

Beint streymi verður aðgengilegt hér á síðunni er kemur að viðkomandi fundi.

SAF, Markaðsstofa Norðurlands og Austurbrú bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðausturkjördæmi.

Fundurinn fer fram þann 10. nóvember í Hofi, Akureyri kl. 17:00-19:00

Nánari upplýsingar er nær dregur.

SKRÁNING FER FRAM HÉR

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar á Íslandi.

Fundurinn fer fram þann 18. nóvember í Sjálfstæðissalnum á Parliament Hótel í Reykjavík kl. 14:00-16:00

Nánari upplýsingar og skráning fer í loftið síðar en áhugasamir eru hvattir til að fylgjast með á miðlum SAF.

Fyrri fundir

SAF, Markaðsstofa Suðurlands og Markaðsstofa Reykjaness bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Suðurkjördæmi.

Fundurinn fer fram þann 15. október á Hótel Selfossi á Selfossi kl. 17:00-19:00.

Framsögumenn fundarins eru Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF, Frímann Snær Guðmundsson, meðeigandi Deloitte á Íslandi Kristján Pétur Kristjánsson, eigandi KONVIN Hotel, og Haraldur Þór Jónsson, oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps.

Þingmenn Suðurkjördæmis til samtals á fundinum eru Guðrún Hafsteinsdóttir, Sjálfstæðisflokkurinn, Halla Hrund Logadóttir, Framsóknarflokkurinn, Karl Gauti Hjaltason, Miðflokkurinn, Sandra Sigurðardóttir, Viðreisn og Sigurður Helgi Pálmason, Flokkur fólksins, og Víðir Reynisson, Samfylkingin.

Fundarstjórar eru Ragnhildur Sveinbjarnardóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Suðurlands og Þuríður H. Aradóttir Braun, forstöðumaður Markaðsstofu Reykjaness.

SAF, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi.

Fundurinn fer fram þann 22. október í Hjálmakletti, Menningarhúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi kl. 17:00-19:00

Framsögumenn fundarins eru Pétur Óskarsson, formaður SAF, Frímann Snær Guðmundsson, meðeigandi Deloitte á Íslandi, Sölvi Guðmundsson, forstöðumaður Markaðsstofu Vestfjarða, Ólafur Steinarsson, eigandi Krauma, og Skapti Örn Ólafsson, upplýsingafulltrúi SAF.

Þingmenn til samtals á fundinum eru Arna Lára Jónsdóttir, Samfylkingin, Ingibjörg Davíðsdóttir, Miðflokkurinn, Ingvar Þóroddson, Viðreisn, Ólafur Adolfsson, Sjálfstæðisflokkurinn, Sigurjón Þórðarson, Flokkur fólksins, og Stefán Vagn Stefánsson, Framsóknarflokkurinn.

Fundarstjóri er Kristján Guðmundsson, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Vesturlands.

Ferðaþjónustudagurinn er árlegur viðburður sem Samtök ferðaþjónustunnar standa fyrir á hverju hausti. Viðburðurinn er ársfundur atvinnugreinarinnar þar sem stefnt er saman fyrirtækjum, stoðkerfi og stjórnvöldum til upplýsinga og umræðu um málefni sem brenna á ferðaþjónustunni hverju sinni. Lestu meira um Ferðaþjónustudaginn hér.