25 ára afmælisráðstefna SAF

Ferðaþjónustudagurinn 2023

Átján áhugaverðir viðburðir í einum!

Á ráðstefnunni verður boðið upp á fjölda viðburða með lotufyrirkomulagi (e. breakout sessions) í fjórum þemum, um framtíð ferðaþjónustunnar, vöruþróun í greininni, þekkingu á ferðaþjónustu og áhrif hennar á samfélagið. Þá verða Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar afhent með viðhöfn.

Horfðu á öll erindi og umræðupanela ráðstefnunnar hér

Öll erindi og umræður á ráðstefnunni voru tekin upp og eru birt hér neðst á síðunni. Þar eru einnig viðtöl við þátttakendur og gesti um efni ráðstefnunnar og upplifun þeirra af vinnustofu og umræðum. 

Hvaða spurningar brenna á þér?

Eru betur borgandi eða betur hugsandi ferðamenn framtíðarinnar? Hvernig býrð þú til og markaðssetur söguna þína? Hvernig má nýta gervigreind og aðstæðuvitund að bæta sölu, rekstur og þjónustu? Hver er framtíðarsýn stjórnmálanna um gjaldtöku af ferðaþjónustu? Hvernig auka fyrirtæki tekjurnar með því að tengja við ferðaþjónustusegla á sínu svæði? Segja símagögn aðra sögu um ferðamenn á Íslandi en opinberar talningar? Er álagsstýring á ferðamannastöðum framtíðin, og þá hvernig og með hvaða markmiðum? Munu tæknifyrirtæki taka yfir ferðaþjónustubransann? Eru skemmtiferðaskip bara vesen eða vanmetin verðmæti?

Svör og sjónarmið um þessi mál og fleiri verða í brennidepli á ráðstefnunni, sem lýkur svo með hressilegum afmælisfögnuði og netagerð.

Stútfull dagskrá með spennandi fyrirlesurum

Hér má sjá nokkra af þeim fyrirlesurum sem fram koma á afmælisráðstefnu SAF, en alls koma um 50 manns fram í fyrirlestrum og umræðupanelum. Ítarlega dagskrá ráðstefnunnar og upptökur af erindum og umræðupanelum er að finna hér neðar á síðunni.

Tryggðu þér miða í dag

Miðasala og verð

Almennt verð er 14.900 kr.
Afsláttarverð fyrir félagsmenn SAF er 9.900 kr.
Sérstakt verð fyrir nema er 4.900 kr.

Ráðstefnugestum er bent á að mögulegt er að sækja styrki eða endurgreiðslu til stéttarfélaga og starfsmenntasjóða. 

Einnig er bent á að hægt er að fá sendan reikning á fyrirtæki eða stofnun ef 4 eða fleiri eru skráðir frá sama aðila. Nánari upplýsingar er að finna í skráningarforminu.

Staðsetning

Hilton Reykjavík Nordica er staðsett við Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík og er fyrir löngu orðið vel þekkt fyrir fjölbreyttar ráðstefnur og fundi. Afmælisráðstefna SAF hefst í aðalráðstefnusal hótelsins en lotuviðburðir fara svo fram í fundasölum á 2. hæð. Við ráðstefnulok og í afmælisfögnuði SAF safnast ráðstefnugestir og fyrirlesarar saman í aðalrástefnusalnum á ný.

Staðsetningin býður upp á næg bílastæði og gott aðgengi, auk þess sem möguleiki er á gistingu á sama stað ef þörf er á fyrir gesti sem koma frá svæðum utan höfuðborgarsvæðisins. 

Ertu með spurningar?

Upplýsingar um ráðstefnuna veitir Skapti Örn Ólafsson upplýsingafulltrúi SAF í síma 8992200 eða með pósti á netfangið skapti@saf.is.

Ef spurningar vakna um aðgengi, hótelherbergi, veitingastaði, mataróþol eða annað er varðar  ráðstefnustaðinn er hægt að hafa samband við Hilton Reykjavík Nordica í síma 4445000 eða með pósti á netfangið hilton.reception@icehotels.is

 

Um ráðstefnuna

Afmælisráðstefna SAF er haldin á Hilton Reykjavík Nordica miðvikudaginn 15. nóvember 2023, kl. 13-17, undir yfirskriftinni “Samtaka í 25 ár.”

Ráðstefnan hefst í ráðstefnusal Hilton Nordica kl. 13:00, en húsið opnar fyrir kynningartorg fyrirtækja, kaffisopa og afhendingu ráðstefnugagna kl. 12:00.

Ráðstefnunni lýkur svo með skemmtilegum afmælisfögnuði og netagerð undir tónlist og léttum veitingum.

Nánari upplýsingar um dagskrá ráðstefnunnar, þemu, lotufyrirkomulagið, umfjöllunarefni, fyrirlesara, umræðupanela og tímasetningar er að finna hér neðar á síðunni.

Ráðstefnan er með lotufyrirkomulagi (e. breakout sessions) þar sem fjórir viðburðir eru í gangi á hverjum tíma og ráðstefnugestir velja hvaða viðburð þau vilja helst sækja. Fjórar slíkar lotur með fjórum viðburðum í hverjum verða í boði milli kl. 13 og 17 og því telur ráðstefnan alls 16 lotuviðburði sem gestir geta valið á milli á ráðstefnudeginum sjálfum.

Allir viðburðirnir verða hins vegar teknir upp og myndbönd af þeim verða gerð aðgengileg skráðum ráðstefnugestum að ráðstefnunni lokinni, svo að enginn þarf að missa af neinu sem fram fer. 

Dagskrá ráðstefnunnar og upptökur af erindum og umræðupanelum

Á ráðstefnunni var boðið upp á fjölda viðburða með lotufyrirkomulagi (e. breakout sessions) í fjórum þemum, um framtíð ferðaþjónustunnar, vöruþróun í greininni, þekkingu á ferðaþjónustu og áhrif hennar á samfélagið. Þá voru Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar afhent með viðhöfn og ráðstefnunni lauk með hressilegum afmælisfögnuði og netagerð.

Efni ráðstefnunnar átti meðal annars erindi við rekstraraðila í ferðaþjónustu, stjórnendur og starfsfólk ferðaþjónustufyrirtækja, eigendur og stjórnendur fyrirtækja í samstarfi við og með hagsmuni af ferðaþjónustu, fjárfesta í greininni, rannsóknaraðila í akademíunni og alla þá sem hafa áhuga á og vilja afla sér aukinnar þekkingar á þróun ferðaþjónustu á Íslandi næstu ár. Þá voru háskólanemar í greinum sem tengjast ferðaþjónustu og viðskiptalífi sérstaklega hvattir til að taka þátt.

Allt efni ráðstefnunnar er aðgengilegt á myndböndum hér að neðan, svo þau sem sóttu ráðstefnuna og annað áhugafólk um ferðaþjónustu geta horft á alla fyrirlestra og málstofur sem boðið var upp á.

13:40 Lota eitt

Framtíð ferðaþjónustu
Salur A/B á 1. hæð

Betur borgandi eða betur hugsandi ferðamenn?

  • Kveikja: Skúli Mogensen,
    Hvammsvík
  • Ásta Kristín Sigurjónsdóttir,
    Íslenski ferðaklasinn
  • Haukur B. Sigmarsson,
    Deplar Farm
  • Jón Bjarki Bentsson,
    Íslandsbanki
  • Stjórn: Ragnhildur Ágústsdóttir,
    Lava Show
Vöruþróun í ferðaþjónustu
Salur D á 2. hæð

Hvernig geta sögur af áföllum og áskorunum aukið tekjur?

  • Guðmundur Arnar Guðmundsson,
    Akademias
Ferðaþjónusta og samfélagið
Salur F/G á 2. hæð

Að laða að og halda í fólk í störfum í ferðaþjónustu

  • Herdís Pála
    Stjórnunarráðgjafi
Þekking á ferðaþjónustu
Salur H/I á 2. hæð

Innsýn í ferðaþjónustu út frá símagögnum

  • Sigurbjörn Magnús Gunnlaugsson
    og Theodór Carl Steinþórsson,
    Vodafone

14:20 Lota tvö

Framtíð ferðaþjónustu
Salur A/B á 1. hæð

Er álagsstýring á ferðamannastöðum nauðsynleg?

  • Inga Dóra Hrólfsdóttir,
    Umhverfisstofnun
  • Ingibjörg Halldórsdóttir,
    Vatnajökulsþjóðgarður
  • Skarphéðinn Berg Steinarsson,
    Sjávarborg
  • Stjórn: Inga Dís Richter,
    Icelandia
Vöruþróun í ferðaþjónustu
Salur D á 2. hæð

Hvað með okkur hin, sem erum ekki seglar í íslenskri ferðaþjónustu?

  • Hjalti Már Einarsson,
    Datera
Ferðaþjónusta og samfélagið
Salur F/G á 2. hæð

Sjálfbærni í ferðaþjónustu: Leiðin fram á við

  • Auður Hrefna Guðmundsdóttir,
    UN Global Compact Íslandi
  • Antonio Hautle,
    UN Global Compact Sviss og Lichtenstein
Þekking á ferðaþjónustu
Salur H/I á 2. hæð

Framtíðarsýn stjórnmálanna um gjaldtöku af ferðaþjónustu

  • Guðlaugur Þór Þórðarson,
    Umhverfis-, orku og loftslagsráðherra
  • Lilja Dögg Alfreðsdóttir,
    menningar- og viðskiptaráðherra
  • Kristrún Frostadóttir,
    formaður Samfylkingarinnar
  • Stjórn: Jóhannes Þór Skúlason,
    SAF

15:25 Lota þrjú

Framtíð ferðaþjónustu
Salur A/B á 1. hæð

Munu tæknifyirrtæki taka yfir ferðaþjónustubransann?

  • Tryggvi Freyr Elínarson,
    Datera
Vöruþróun í ferðaþjónustu
Salur D á 2. hæð

Leitin að leiðarljósinu: Vaxtarstefna fyrir fyrirtæki

  • Ingi Björn Sigurðsson,
    KLAR
Ferðaþjónusta og samfélagið
Salur F/G á 2. hæð

Skemmtiferðaskip: Vesen eða verðmæti?

  • Björg Ágústsdóttir,
    Grundarfjörður
  • Einar Á Sæmundsen,
    Þingvallaþjóðgarður
  • Sigurður Jökull Ólafsson,
    Faxaflóahafnir
  • Stjórn: Pétur Óskarsson,
    Katla-DMI
Þekking á ferðaþjónustu
Salur H/I á 2. hæð

Skiptir ferðaþjónusta einhverju máli fyrir sveitarfélögin?

  • Kveikja: Diljá Matthíasardóttir,
    SAF
  • Einar Freyr Elínarson,
    Mýrdalshreppur
  • Einar Þorsteinsson,
    Reykjavík
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir,
    Húnaþing vestra
  • Stjórn: Jóna Árný Þórðardóttir,
    Fjarðabyggð

15:25 Lota þrjú

Framtíð ferðaþjónustu
Salur A/B á 1. hæð

Framtíð ferðaþjónustunnar: Stóru málin! 

  • Helena W. Óladóttir
    og Sævar Kristinsson,
    KPMG
Vöruþróun í ferðaþjónustu
Salur D á 2. hæð

Má selja eymdina? ‘Dark tourism’ á Íslandi

  • Kristín Jóhannsdóttir,
    Eldheimar Vestmannaeyjum
  • María Pálsdóttir,
    Hælið Kristnesi
  • Stefán Eiríksson,
    RÚV
  • Stjórn: Ágúst Elvar Bjarnason,
    SAF
Ferðaþjónusta og samfélagið
Salur F/G á 2. hæð

Á (ísl)ensku má alltaf finna svar?

  • Bjarnheiður Hallsdóttir,
    formaður SAF
  • Lilja Dögg Alfreðsdóttir,
    ráðherra ferðamála og íslenskunnar
  • Aleksandra Leonardsdóttir,
    Alþýðusamband Íslands
  • Stjórn: Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir,
    VÖK
Þekking á ferðaþjónustu
Salur H/I á 2. hæð

Bætt sala, rekstur og þjónusta með gervigreind og aðstæðuvitund

  • Stefán Baxter,
    Snjallgögn

16:45 Ráðstefnulok (Salur A/B á 1. hæð)

  • Lilja Dögg Alfreðsdóttir Menningar- og viðskiptaráðherra
  • Bjarnheiður Hallsdóttir formaður og Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri SAF

17:00 Afmælisfögnuður

Samtaka í 25 ár!

Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) voru stofnuð 11. nóvember 1998 og eru hagsmunasamtök allra fyrirtækja sem starfa í ferðaþjónustu. Samtökin voru byggð á grunni Sambands veitinga- og gistihúsa (SVG), sem stofnuð voru árið 1945 og lögðu önnur hagsmunasamtök sem störfuðu innan ferðaþjónustunnar niður starfsemi sína á sama tíma. Á þessum tímamótum voru hátt í 200 aðilar að SVG sem gengu til liðs við SAF sem í dag telur um 400 fyrirtæki í ferðaþjónustu í öllum geirum greinarinnar um allt land. 

Meginhlutverk SAF er að gæta sameiginlegra hagsmuna félagsmanna sinna gagnvart stjórnvöldum, vinna að vexti og viðgangi greinarinnar og því að fyrirtækin búi við starfsskilyrði sem gera þau samkeppnishæf á alþjóðamarkaði, og stuðla að því að ferðaþjónusta á Íslandi grundvallist á virðingu fyrir landi og þjóð. 

Í dag er fjöldi ólíkra fyrirtækja í SAF. Þar eru flugfélög, ferðaskrifstofur, gististaðir, veitingahús, bílaleigur, hópbifreiðafyrirtæki, afþreyingarfyrirtæki, tæknifyrirtæki, viðburðafyrirtæki og fleiri fyrirtæki sem með margvíslegum hætti telja sig til ferðaþjónustufyrirtækja. SAF starfa með öðrum hagsmunasamtökum og eru þau ein af 6 aðildarsamtökum Samtaka atvinnulífsins sem stofnuð voru 15. september 1999 með samruna Vinnuveitendasambands Íslands og Vinnumálasambandsins. 

Stefna SAF í hinum ýmsum málum unnin á vegum stjórnar og nefnda. Innan samtakanna starfa átta fagnefndir sem hver um sig sinnir málefnum sinnar greinar innan ferðaþjónustunnar. 

Með stofnun og starfi SAF hefur íslensk ferðaþjónusta talað einni röddu gagnvart stjórnvöldum, fjölmiðlum svo og öðrum sem ferðaþjónustufyrirtæki skipta við í 25 ár. Styrkur þess að atvinnugreinin komi sameinuð fram út á við um hagsmunamál sín er óumdeildur eins og fjölmörg dæmi um árangur í hagsmunamálum greinarinnar á liðnum aldarfjórðungi sýna.