Verðlaun fyrir framúrskarandi lokaverkefni um ferðamál
Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) og Rannsóknamiðstöð ferðamála (RMF) veita árlega verðlaun fyrir framúrskarandi lokaverkefni um ferðamál sem unnið er af nemanda við háskóla hér á landi. Verðlaunin hafa verið veitt á hverju ári síðan 2006 og eru afhent í kringum aðalfund SAF.
Tvenns konar verðlaun eru veitt:
Kallað er eftir tilnefningum í janúar ár hvert fyrir verkefni sem voru metin til prófgráðu á árinu á undan. RMF kallar eftir tilnefningum frá leiðbeinendum nemenda við íslenska háskóla. Forsenda tilnefninga er að lokaverkefnin uppfylli ítrustu kröfur sem gerðar eru til rannsóknarritgerða á viðkomandi námsstigi og séu faglega unnin í hvívetna.
Verðlaunahafar eru valdir af þriggja manna dómnefnd sem skipuð er einum fulltrúa úr stjórn RMF, einum frá SAF auk starfsmanns RMF. Mat dómnefndar byggist á eftirfarandi þáttum:
Tekið skal fram að leiðbeinendur nemenda sem tilnefndir eru til verðlaunanna mega ekki sitja í dómnefnd. Dómnefnd áskilur sér rétt til að hafna innsendum tilnefningum uppfylli verkefni ekki ofangreinda þætti.
Eftirfarandi lokaverkefni hafa hlotið verðlaunin á liðnum árum, en allar tilnefningar má nálgast á vef RMF.
2024: Public Right of Access in Times of Tourism Boom: Landowners‘ Perspectives
MS verkefni. Julia Kienzler, frá Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands – umhverfis- og auðlindafræði
2023: This was the highlight of our trip!” What can TripAdvisor reviews teach us about the tourism experience?
MS verkefni. Guðný Ljósbrá Hreinsdóttir, frá viðskiptafræðideild Háskóla Íslands – markaðs- og alþjóðaviðskipti
2022: Transforming emergent Icelandic tourist sites into sustainable and responsibly managed destinations: A case study of the 2021 Geldingadalur eruption in Iceland
MS verkefni. Stephanie Langridge frá viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík – stjórnun í ferðaþjónustu
Fræðslustarf í smærri ferðaþjónustufyrirtækjum. „Samskipti eru bara númer 1, 2 og 3 sko“
BS verkefni. Lilja Karen Kjartansdóttir frá Verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands – ferðamálafræði
2021: Public views on the Central Highland National Park – conditions for a consensus among recreational users
MS verkefni. Michaël Bishop frá Verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands – land- og ferðamálafræði
Á ferðalagi um samfélagsmiðla
BS verkefni. Tanja Sól Valdimarsdóttir frá Verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands – ferðamálafræði
2020: Samfélagsábyrgð í ferðaþjónustu: Samþætting samfélagsábyrgðar við kjarnastarfsemi íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja
MS verkefni. Íris Sigurðardóttir frá Félagsvísindasviði Háskóla Íslands – viðskiptafræði
Beint flug Super Break til Akureyrar : væntingar farþega og upplifun
BA verkefni. Elva Dögg Pálsdóttir og Sólveig Hulda Árnadóttir frá Ferðamáladeild Háskólans á Hólum
2019: Myndræn menning og landslag: Tækifæri sýndar- og viðbótarveruleika til að skapa upplifun fyrir ferðamenn
BS-verkefni. Kristján Alex Kristjánsson frá Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands – ferðamálafræði
2018: Markaðsáætlun Nordic Green Travel ehf.
BS-verkefni. Daði Már Steinssonar og Grétar Ingi Erlendsson frá Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands – ferðamálafræði
2017: Af skapandi ferðaþjónustu í skapandi borg: Er Reykjavík með’etta?
MS-verkefni. Jónína Lýðsdóttir frá Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands – ferðamálafræði
2016: Viðhorf til mikilvægis starfsþjálfunar í ferðaþjónustu: Dæmi frá veitingastöðum á Húsavík.
BA-verkefni. Berglind Ósk Kristjánsdóttir frá Ferðamáladeild Háskólans á Hólum
2015: New approaches for wilderness perception mapping: A case study from Vatnajökull National Park, Iceland.
MS-verkefni. Willem Gerrit Tims frá Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands
2014: Tour Guide Competencies and Training Needs: Focus on the tour guides of Arctic Adventures.
MS-verkefni. Paavo Olavi Sonninen frá Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands
2013: Gestanauð eða fagnaðarfundir? Viðhorf heimafólks til samfélagslegra áhrifa ferðaþjónustu í Vopnafirði.
BA-verkefni. Berghild Fanney Hauksdóttir frá Ferðamáladeild Háskólans á Hólum
2012: Hvað finnst Mývetningum um ferðaþjónustu?
BS-verkefni. Margrét Hólm Valsdóttir frá Viðskiptadeild Háskólans á Akureyri
2011: Þjónustugæði í íslenskri ferðaþjónustu og áhrif mismunandi menningar í þjónustu.
MS-verkefni. Áslaug Briem frá Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands
2010: Kjölur. Fjölbreytt landslag, ferðamennska og upplifun.
BS-verkefni. Jóna Sigurbjörg Eðvaldsdóttir. Líf-og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands – ferðamálafræði
2009: The image of Iceland. Actual summer visitors image of Iceland as a travel destination.
MS-verkefni. Gunnar Magnússon frá Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands
2008: Samvinna fyrirtækja í samkeppni á íslenskum ráðstefnumarkaði.
BS-verkefni. Hildur Kristjánsdóttir frá Jarð- og landfræðiskor Háskóla Íslands
2007: Gæði í gistingu. Gæðastefnur og aðferðir við mælingar á þjónustugæðum innan valinna hótelkeðja á Íslandi.
BS-verkefni. Ýr Káradóttir frá Jarð- og landfræðiskor Háskóla Íslands.
2006: Comparing environmental performance, environmental benchmarking for SMEs in the Nordic tourism industry.
MS-verkefni. Anne Maria Sparf frá Jarð- og landfræðiskor Háskóla Íslands
© 2025 SAMTÖK FERÐAÞJÓNUSTUNNAR. Allur réttur áskilinn.