Ársfundur ferðaþjónustufyrirtækja á Íslandi
Á hverju hausti bjóða Samtök feðraþjónustunnar til ráðstefnu um stöðu og framtíð atvinnugreinarinnar undir merkjum Ferðaþjónustudagsins. Ráðstefnan er ársfundur ferðaþjónustunnar þar sem stefnt er saman fyrirtækjum, stoðkerfi og stjórnvöldum til upplýsinga og umræðu um málefni sem brenna á greininni hverju sinni.
Ferðaþjónustudagurinn er í senn uppskeruhátíð atvinnugreinarinnar að hausti og ráðstefna þar sem rýnt er í stöðu og horfur greinarinnar, þróun hennar greind og rædd og framtíðin krufin.
Meðal málefna sem fjallað hefur verið um á ferðaþjónustudeginum síðustu ár er gjaldtaka af ferðamönnum, gervigreind og stafræn þróun, mannauðsmál, hæfni og fagmennska, skemmtiferðaskipakomur, álagsstýring, sjálfbærni og umhverfismál, stefnumótun og framtíðarsýn greinarinnar, efnahagsmál og sýn stjórnmálanna á þróun greinarinnar, áhrif ferðaþjónustu á samfélagið svo eitthvað sé nefnt.
Árið 2023 var haldin 25 ára afmælisráðstefna þar sem boðið var upp á fjölda viðburða með lotufyrirkomulagi í fjórum þemum. Ráðstefnan var sú stærsta sem haldin hefur verið um ferðaþjónustu á Íslandi.
Árið 2024 var Ferðaþjónustudagurinn haldinn í samvinnu við Ferðamálastofu, Umhverfisstofnun, Vatnajökulsþjóðgarð og Þingvallaþjóðgarð, þar sem fjallað var um Álagsstýringu á fjölförnum áfangastöðum. Rúmlega 300 manns úr fyrirtækjum og stjórnkerfinu tóku þátt í heils dags ráðstefnu með fyrirlesurum frá fjórum löndum, ásamt vinnustofu þar sem tekist var á við raunhæf verkefni úr íslenskri ferðaþjónustu.
SAF leggja áherslu á að Ferðaþjónustudagurinn styðji við og ýti undir raunhæfa umræðu um stöðu og framtíð ferðaþjónustu í samhengi við efnahagsmál og samfélagið.
© 2025 SAMTÖK FERÐAÞJÓNUSTUNNAR. Allur réttur áskilinn.