Fjárlagafrumvarpið er alvarleg atlaga að íslenskri ferðaþjónustu

Smtökferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það virðist varla skipta máli hvaða álögur sem viðkoma atvinnugreininni ýmist beint eða óbeint eru nefndar á nafn, þær skulu hækkaðar. Í frumvarpinu er hins vegar ekki látið þar við sitja, heldur er jafnframt fyrirhugað að leggja á nýtt náttúru- og innviðagjald.

Í umsögnum um fjárlög og tekjuráðstafanir vegna þeirra leggjast Samgök ferðaþjónustunnar alfarið gegn fyrirhuguðum skatta- og gjaldahækkunum á ferðaþjónustu sem birtast í frumvarpinu, sem og innleiðingu náttúru- og innviðagjalds. Það getur ekki talist eðlilegt að ein atvinnugrein fái jafn víðtækar og umfangsmiklar hækkanir á álögum yfir sig líkt og ferðaþjónustan gerir nú, þ.m.t hækkun gistináttaskatts og innviðagjalds á farþega skemmtiferðaskipa, hækkun virðisaukaskatts á aðgang að baðlónum, hækkun kílómetragjalds, áfengisgjalds, bifreiðagjalds og nýtt náttúru- og innviðagjald fyrir aðgang ferðamanna að náttúruperlum Íslands.

Ef ráðast á í svo umfangsmiklar breytingar á rekstrarumhverfi ferðaþjónustunnar væri nærtækara að leggjast í heildarendurskoðun á því með samkeppnishæfni atvinnugreinarinnar og stóru myndina að leiðarljósi. Þá er nauðsynlegt að fyrirsjáanleiki sé tryggður og raunverulegt samráð sé viðhaft við þá sem best þekkja til, atvinnugreinina sjálfa, að almennilegt áhrifamat sé unnið og vandað sé til verka.

SAF leggjast alfarið gegn þeirri breytingu að gistináttaskattur og innviðagjald á farþega skemmtiferðaskipa falli undir árlega verðlagsuppfærslu krónutölugjalda. Þá kalla SAF eftir því að krónutölugjöld hækki ekki meira en sem nemur verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands.

Óskynsamlegar efnahagslegar ákvarðanir sem skaða samkeppnishæfni ferðaþjónustu

Það eru mikil vonbrigði að framlagt fjárlagafrumvarp feli í sér jafn íþyngjandi áform fyrir íslenska ferðaþjónustu og raun ber vitni. Það er ótækt að stjórnvöld ætli sér að þyngja róður stærstu einstöku útflutningsatvinnugreinar landsins enn frekar vísvitandi með þessum hætti, ofan á alla þá óvissu sem greinin stendur frammi fyrir. Eðli málsins samkvæmt eru takmörk fyrir því hversu miklar álögur atvinnugreinin getur borið. Íslenskri ferðaþjónustu hefur tekist á tiltölulega skömmum tíma að byggja upp þjónustuframboð og innviði á heimsmælikvarða. Stjórnvöld mega ekki glutra niður þeim mikla árangri sem náðst hefur með óskynsamlegum ákvörðunum, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar er undir og framtíðarframlag hennar til lífskjaravaxtar þjóðarinnar.

SAF kalla eftir því að stjórnvöld hverfi frá aukningu álaga á ferðaþjónustu og horfi þess í stað meira til eigin atvinnustefnu, skapi stöðugt og hagfellt rekstrarumhverfi og styðji þannig við aukinn vöxt útflutnings, alþjóðlega samkeppnishæfni og byggi upp frekari tækifæri til þess að auka framleiðni.

Langskynsamlegast væri fyrir stjórnvöld að endurhugsa hvernig hægt sé að ná markmiðinu um hallalaus fjárlög. Það eru aðrar leiðir færar en að hækka álögur og kasta samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu fyrir róða.

Lesa umsögn SAF um fjárlagafrumvarp fyirr 2027

Lesa umsögn SAF um frumvarp til breytinga á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027

Tengdar fréttir

Smtökferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það virðist …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til umhverfisverðlauna atvinnulífsins 2026. Verðlaunin verða veitt á Umhverfisdegi atvinnulífsins sem verður haldinn í ellefta sinn þriðjudaginn …

Daníel Pétur Daníelsson hlýtur lokaverkefnisverðlaun SAF og RMF fyrir meistararitgerðina Ræs! – Síld! Rannsókn á sambandi Síldarminjasafns Íslands við samfélagið í Siglufirði. …