Fjármögnun fyrir fyrirtæki í stafrænni vegferð

Íslenski ferðaklasinn er hluti af Evrópuverkefninu TOURBIT sem hefur það hlutverk að hraða ferðaþjónustufyrirtækjum í gegnum stafrænar umbreytingar.

Nú býðst sjö íslenskum fyrirtækjum að fá styrk að andvirði 9 þúsund evra hvert, sem hluti af þessu verkefni. Þau þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði og vera í ákveðnum flokkum, en nánari upplýsingar má sjá í PDF skjölum sem finna má hér að neðan.

Þessi hluti af verkefninu er unninn með stuðningi Ferðamálastofu og landshlutasamtaka sveitarfélaga í samstarfi við áfangastaða- og markaðsstofur. Frestur til að skila inn umsókn er til 19. apríl, kl. 15:00.

Smelltu hér til að skoða tilkynningu PDF um verkefnið á og hér til að skoða glærukynningu frá Tourbit.

Hverjir geta sótt um?

Þau fyrirtæki sem geta sótt um stuðning á sinni stafrænu vegferð eru fyrirtæki í þessum flokkum:

  • Hótel og gististaðir – Hotels and similar accommodation (NACE I5510)
  • Gistiheimli og smáhýsi – Holiday and other short-stay accommodation (NACE I5520)
  • Tjaldsvæði – Camping grounds, recreational vehicle parks and trailer parks (NACE I5530)
  • Ferðaskrifstofur, ferðasalar dagsferða og tengdur rekstur – Travel agency, tour operator reservation service and related activities (NACE N79)

Hvaða skilyrði eru fyrir því að umsóknin sé tekin til greina?

  • Fyrirtæki sé lítið eða meðalstórt fyrirtæki á evrópskum mælikvarða (starfsmenn á bilinu 1-250)
  • Velta sé undir 50m €
  • Tilgreina hvaða stafræna úrbótaverkefni fyrirtækið hyggst vinna að
  • Vera hluti af Tourbizz samfélaginu.
  • Fara í gegnum stafrænt hæfni mat / sjálfsmat – sjá hér.

Hvað má nota stuðninginn í?

  • Ráðagjafakostnað og sérfræðikostnað
  • Auka hæfni og þekkingu innan fyrirtækis með aðkeyptri þjónustu (námskeið, menntun, osfrv)
  • Innleiðingaferli á nýrri tækni
  • Eingöngu er hægt að nota stuðninginn hjá fyrirfram ákveðnum þjónustuaðilum, listi yfir þjónustuaðila verður aðgengilegur hér: www.tourbit.eu – ef þú ert þjónustuaðili getur þú skráð þig hér.

Mikilvægt er að kynna sér málið vel hér, hala niður umsókninni hér og senda inn umsókn fyrir 19. apríl, kl 15:00.

Tengdar fréttir

Samtök atvinnulífsins og aðildarsamtök hafa opnað fyrir tilnefningar til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins 2025. Hvetja samtökin aðildarfyrirtæki til að senda inn tilnefningar eigi síðar …

Vesturland sótt heim

Á dögunum gerðu Samtök ferðaþjónustunnar víðreist um Vesturland þar sem formaður og starfsfólk samtakanna hittu fyrirtæki í ferðaþjónustu, forystufólk í sveitarstjórnum og …

Fjöldi kvenna í ferðaþjónustu komu saman í Gamla kvennaskólanum sl. miðvikudag til þess að fagna upphafi verkefnisins Konur í ferðaþjónustu sem Samtök …

Samtök ferðaþjónustunnar hafa skilað umsögn til forsætisráðuneytisins um áform um atvinnustefnu Íslands til 2035, sem kynnt voru í Samráðsgátt stjórnvalda 11. ágúst. …

Eitt ár er þar til Íslendingar upplifa almyrkva á sólu í fyrsta sinn síðan 1954. Um sögulegan atburð er að ræða því …

Evrópusambandið hefur undanfarin ár unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System(skammstafað EES). …