Alþjóðasamstarf

SAF er aðili að og á í samstarfi við ýmis erlend ferðaþjónustusamtök og skóla

Mikilvægt samstarf við Norðurlönd og Evrópu

Hluti af starfi Samtaka ferðaþjónustunnar er að bera saman bækur sínar um starfsumhverfi greinarinnar við systursamtök á sviði ferðaþjónustu á Norðurlöndunum og í Evrópu. Samskipti af þessu tagi eru afar mikilvæg og gagnleg þar sem upplýsingar sem þar koma fram nýtast í samskiptum við stjórnvöld um starfsumhverfi ferðaþjónustunnar hér á landi. Ferðaþjónusta í Evrópu á einnig sameiginlegra hagsmuna að gæta gagnvart löggjafarvaldi  Evrópusambandsins og á mikil samskipti við stofnanir ESB í gegn um regnhlífarsamtök ferðaþjónustusambanda í Evrópulöndunum.

HOTREC

Samtök ferðaþjónustunnar eru formlegur aðili að HOTREC sem eru regnhlífarsamtök hótel- og veitingasamtaka í Evrópu og eru afar mikilvægur vettvangur gagnvart laga- og reglugerðabreytingum Evrópusambandsins sem hafa einnig víðtæk áhrif hér á landi. Á vettvangi HOTREC er einnig unnið í samstarfi að ýmsum málefnum sem hafa áhrif á ferðaþjónustuaðila í Evrópu, s.s. OTA’s, nýtingu tækniþróunar, deilingu upplýsinga og þekkingar milli landa o.s.frv.

SAF sækja vor- og haustþing HOTREC og taka þátt í ýmsum verkefnum, vinnuhópum og  upplýsingamiðlun á vegum samtakanna.

Nordisk Besöksnäring

Samtök ferðaþjónustunnar eru aðilar að formlegum vettvangi hótel- og veitingasamtaka á Norðurlöndunum, Nordisk Besöksnäring. Auk SAF eru þar Horesta frá Danmörku, NHO Reiseliv frá Noregi, Visita frá Svíþjóð og MaRa frá Finnlandi.

SAF hafa tekið þátt í þessu norræna samstarfi um margra ára skeið og hefur það reynst mikilvægur vettvangur í erlendu samstarfi samtakanna. Samvinna ferðaþjónustusamtaka á Norðurlöndum gefur meðal annars tækifæri til mikilvægs samanburðar við nágrannalöndin hvað varðar kjaramál, samskipti við stjórnkerfið, þróun skattheimtu á greinina, mannauðsmál og fjölda annarra sameiginlegra áskorana sem ferðaþjónustufyrirtæki glíma við. 

Evrópskir hótel- og veitingaskólar

Samtök ferðaþjónustunnar eru í samstarfi við tvær samsteypur svissneskra hótel- og veitingaskóla, annars vegar Sommet Education og hins vegar Swiss Education Group. Allir skólar beggja samsteypanna hafa löngum verið metnir á meðal bestu hótel- og veitingaskóla heims.

Sommet Education á og rekur meðal annars skólana:

Swiss Education Group á og rekur meðal annars:

 

Meðal þess sem samstarfið býður upp á eru veglegir skólastyrkir fyrir starfsfólk aðildarfélaga Samtaka ferðaþjónustunnar sem eru í boði ár hvert fyrir umsækjendur um nám við skólana. 

Nordisk Persontransport

Samtök ferðaþjónustunnar eiga í miklum samskiptum við systursamtökin Nordisk Persontransport innan hópbifreiðageirans á Norðurlöndunum. Að jafnaði hittast fulltrúar samtakanna tvisvar á ári. Þessi samskipti eru afar mikilvæg við að tryggja að umhverfi í rekstri hópbifreiða hér á landi sé í samræmi við það sem best gerist í nágrannalöndum okkar.

Frá fundi Nordisk Persontransport í janúar 2025

NordPass - Nordisk Passagerbåt Förening

Samtök ferðaþjónustunnar eru aðilar að samtökum útgerða með farþegaskip og -báta (Nordpass). Samtökin hittast á hverju hausti en SAF hefur einnig átt í talsverðum óformlegum samskiptum við aðila innan Nordpass og leitað upplýsinga um fyrirkomulag ferjusiglinga, mönnun, öryggisstjórnun, búnað o.fl. sem nýst hafa í samræðum og samskiptum við Samgöngustofu um fyrirkomulag ferðaþjónustusiglinga hér við land. Auk Samtaka ferðaþjónustunnar eru þar fulltrúar frá samtökum í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi.

Frá fundi Nordpass í nóvember 2024

Viristar

Viristar er alþjóðlegt ráðgjafafyrirtæki sem sérhæfir sig í öryggi, gæðum og fagmennsku í ævintýraferðaþjónustu. Haustið 2025 skrifuðu Samtök ferðaþjónustunnar og Viristar undir samstarfssamning sín á milli sem snýr að þjálfun í áhættustjórnun fyrir rekstraraðila í ævintýraferðaþjónustu á Íslandi. Félagsmönnum SAF stendur því til boða að fá 20% afslátt af námskeiðinu Risk Management for Outdoor Programs. Námskeiðið er 40 klukkustunda netnám þar sem sjálfsnám og fjarfundir með leiðbeinendum er sameinað.

SAF hvetja sína félagsmenn til að nýta sér námskeiðið en samtökin telja að námskeið Viristar muni hjálpa íslenskum ferðaþjónustufyrirtækjum að þróa enn markvissara verklag í öryggismál. Til að nýta sér afslátt SAF þarf að hafa samband við skrifstofu SAF í gegnum netfangið saf@saf.is

 

Viltu vita meira?