Hvernig höldum við í gott fólk? Menntamorgunn ferðaþjónustunnar
14. október @ 11:00 - 12:00

Gott starfsfólk er gulls ígildi. En hvað fær það til að vera áfram og hvað fær það til að snúa aftur?
Núna beinum við sjónum að fólkinu okkar og því hvernig við sköpum vinnustaði þar sem starfsfólk vill vera, vaxa og leggja sitt af mörkum.
Við veltum meðal annars fyrir okkur:
Hvað fær gott starfsfólk til að vera áfram og hvers vegna missum við það?
Hvernig stuðla samskipti, viðurkenning, fræðsla og starfsþróun að starfsánægju?
Hvað fær fyrrverandi starfsfólk til að snúa aftur?
Hvernig nýtum við veturinn til að undirbúa næsta ferðatímabil og taka vel á móti starfsfólki?
Það þarf ekki alltaf að kosta mikið að bæta starfsumhverfið. Litlar breytingar í daglegum samskiptum, skýrari væntingar og tækifæri til að þróast í starfi geta skipt miklu máli – bæði fyrir fólkið og reksturinn.
Dagskrá og fyrirlesarar verða kynnt hér þegar nær dregur.
Menntamorgunn ferðaþjónustunnar er samstarfsverkefni Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, Samtaka ferðaþjónustunnar, Ferðamálstofu og Markaðsstofa landshlutanna.