- This event has passed.
Menning og ferðaþjónusta á Norðurlandi – Opin vinnustofa á Akureyri

Samtök ferðaþjónustunnar, Safnafræði við Háskóla Íslands, Rannsóknamiðstöð ferðamála (RMF), Félag íslenskra safna og safnafólks (FÍSOS) og Síldarminjasafnið á Siglufirði standa fyrir opinni vinnustofu um menningu og ferðaþjónustu á Norðurlandi þann 7. maí kl. 10:00 – 15:00 í Lionssalnum, Skipagötu 14 á Akureyri. Viðburðurinn er ókeypis, en óskað er eftir að fólk skrái sig, hér: https://forms.gle/9qMpTxi6fhxNwSFm8
Markmiðið er að viðburðurinn verði bæði skemmtilegur og gagnlegur en lagt er upp með að styðja og styrkja samstarf og samtal milli menningar- og ferðaþjónustuaðila á Norðurlandi og stuðla að sjálfbærri þróun í ferðaþjónustu. Því viljum við leiða saman alla aðila á einn stað og hefja samtalið. Því aukin samvinna er ekki síst mikilvæg í ljósi þess að heimsóknir á söfn eru þriðja vinsælasta afþreying ferðamanna á Íslandi, á eftir náttúrulaugum og heilsulindum.
DAGSKRÁ
9:30 Húsið opnar.
10:00 Niðurstöður könnunar um söfn og ferðaþjónustu.
Guðrún Dröfn Whitehead, safnafræði HÍ
10:15-11:15. Pallborðsumræður 1: Möguleikar í samstarfi innan svæða.
Þátttakendur halda 5 mín kynningu hver, í kjölfarið eru umræður og spurningar teknar úr sal.
Pallborðsstjóri: Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF
Þátttakendur:
Haraldur Þór, forstöðumaður Minjasafnsins á Akureyri.
Helga Nína Helgadóttir, Markaðsstjóri SBA Norðurleiðir.
Elías Bj. Gíslason, sérfræðingur á sviði þróunar og þjónustu hjá Ferðamálastofu.
11:15-12:15. Pallborðsumræður 2: Áskoranir og úrræði.
Þátttakendur halda 5 mín kynningu hver, í kjölfarið eru umræður og spurningar teknar úr sal.
Pallborðsstjóri: Steinunn María Sveinsdóttir, safnstjóri Flugsafns Íslands.
Þátttakendur:
Aníta Elefsen, safnstjóri Síldarminjasafns Íslands.
Elín Aradóttir, markaðs- og áfangastaðaþróun hjá Markaðsstofa Norðurlands.
Kristín Sóley Björnsdóttir, viðburðastjóri hjá Menningarfélagi Akureyrar
Þórgnýr Dýrfjörð, forstöðumaður atvinnu-, menningar og markaðsmála hjá Akureyrarbæ
12:15-13:00 Hádegishlé
13:00-14:00. Menningarstofnanir og markaðssetning.
Hjalti Már Einarsson framkvæmdastjóri Datera
14:00-15:00. Hvernig eflum við samtalið, “speed-dating” viðburður.
Dagrún Ósk Jónsdóttir, þjóðfræðingur, HÍ stýrir
Vonumst til að sjá ykkur sem flest!