Notendafundur SAF og Samgöngustofu með hópbifreiðafyrirtækjum
16. september @ 09:30 - 10:30

Hópbifreiðanefnd SAF boðar til notendafundar með Samgöngustofu 16. september. Á fundinum munu fulltrúar Samgöngustofu eiga opinskátt samtal við forsvarsmenn hópbifreiðafyrirtækja um þjónustu stofnunarinnar og önnur mál sem viðkoma rekstri hópbifreiða og umferðaröryggi.
Fundurinn er aðeins opinn félagsmönnum SAF og hafa félagsmenn fengið tölvupóst með nánari upplýsingum og skráningarhlekk. Frekari upplýsingar má nálgast hjá skrifstofu SAF.