- This event has passed.
Vorþing HOTREC
20. apríl - 22. apríl

Vorþing Hotrec, sambands hótel- og veitingasamtaka í Evrópu, fer fram í Cork á Írlandi dagana 20.-22. apríl.
Á þinginu verður m.a. fjallað um samkeppnisáskoranir í gisti- og veitingarekstri, mál í umfjöllun Evrópukerfisins og hópmálsókn hótela gegn Booking.com.
SAF eru aðili að Hotrec og taka þátt í þingum samtakanna tvisvar á ári, auk nefndastarfs og funda um einstök málefni er varða ferðaþjónusturekstur í álfunni og löggjöf á vettvangi Evrópusambandsins sem hefur áhrif á rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja.
