Vorþing Hotrec, sambands hótel- og veitingasamtaka í Evrópu, fer fram í Cork á Írlandi dagana 20.-22. apríl. Á þinginu verður m.a. fjallað um samkeppnisáskoranir í gisti- og veitingarekstri, mál í umfjöllun Evrópukerfisins og hópmálsókn hótela gegn Booking.com. SAF eru aðili að Hotrec og taka þátt í þingum samtakanna tvisvar á ári, auk nefndastarfs og funda […]