- This event has passed.
Hvernig geta ferðaskrifstofur hagnýtt LinkedIn?

Ferðaskrifstofunefnd SAF boðar til félagsfundar þar sem fjallað verður um notkun LinkedIn og hvernig ferðaskrifstofur geta nýtt miðilinn markvisst til að auka sýnileika, styrkja ímynd sína og koma vöru og þjónustu betur á framfæri.
LinkedIn er kjörinn vettvangur til þess að efla sýnileika fyrirtækja og greinarinnar. Á undanförnum árum hefur vettvangurinn orðið sífellt mikilvægari vettvangur fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu, bæði þegar kemur að samskiptum við samstarfsaðila, birgja og viðskiptavini, sem og í uppbyggingu vörumerkis og miðlun þekkingar. Á fundinum verður farið yfir hagnýtar leiðir til að nýta miðilinn á skilvirkan hátt, með áherslu á raunhæf dæmi og skýrar áherslur.Fundurinn fer fram miðvikudaginn 11. febrúar kl. 09:00 í Borgartúni 35. Fundinum verður jafnframt streymt fyrir þá félagsmenn sem ekki eiga heimangengt.
Gestur fundarins verður Steinar Þór Ólafsson, sérfræðingur í samskiptum og miðlun hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) og einn eigenda Steinsmiðjunnar Rein. Steinar Þór mun fara yfir lykilatriði sem geta aukið stafrænan sýnileika fyrirtækja, fjalla um markvissa miðlun og deila reynslu sinni af því hvernig fyrirtæki geta nýtt LinkedIn í daglegum rekstri og markaðssamskiptum.
Við hvetjum félagsmenn til að taka þátt, hvort sem er á staðnum eða í streymi, og nýta tækifærið til að efla þekkingu innan síns fyrirtækis. Minnum einnig á að fundurinn er ekki eingöngu ætlaður stjórnendum og eigendum ferðaskrifstofa heldur einnig þeim sem sitja í sölu og markaðsteymum rekstraraðila.