Félagsfundur um skattafrumvörp ríkisstjórnarinnar
6. október @ 13:00 - 17:00

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til upplýsingafundar fyrir félagsmenn þriðjudaginn 6. október kl. 13.00. Fundurinn fer fram í Borgartúni 35 en einnig er hægt að fylgjast með og taka þátt í netfundi. Tengill á netfundinn hefur verið sendur félagsmönnum SAF í tölvupósti
Á síðustu vikum hafa komið fram stórtæk áform ríkisstjórnarinnar um nýja og hærri skatta á ferðaþjónustu, m.a. nýtt náttúru- og innviðagjald, hækkun VSK á baðlón og hækkun kílómetragjalds auk þess sem gistináttaskattur og innviðagjald á skemmtiferðaskip skulu nú felld undir hækkanir krónutölugjalda í samræmi við verðlag 1. janúar ár hvert.
SAF hafa andmælt öllum þessum málum nú þegar og í áframhaldandi samskiptum við stjórnvöld vegna þeirra er mikilvægt að raddir félagsmanna heyrist, bæði beint og í gegn um SAF, og að félagsmenn hafi sem bestar upplýsingar um vinnu samtakanna. Markmiðið með fundinum er því að skiptast á skoðunum og upplýsingum um þessi mál til að styrkja samstöðuna og samvinnuna.