Loading Events

« Allir viðburðir

Ferðaþjónustudagar 2026: Norðvesturkjördæmi

22. október @ 17:00 - 19:00

Fimmtudaginn 22. október standa Samtök ferðaþjónustunnar, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða að fundi um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram í Hjálmakletti, Menningarhúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi kl. 17:00-19:00 undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru stjórnvöld helsta hindrun ferðaþjónustunnar?

Fundurinn fer fram á mikilvægum tímapunkti en á Alþingi liggja nú fyrir stór mál sem snerta ferðaþjónustuna með beinum hætti og geta haft veruleg áhrif á rekstrarskilyrði greinarinnar og atvinnulíf um allt land. Þar má meðal annars nefna skattahækkanir á baðlón, krónutöluhækkanir á gistináttaskatti og innviðagjaldi ásamt frumvarpi til laga um náttúru- og innviðagjald, svokallaðan náttúrupassa. Þetta eru ekki aðeins málefni ferðaþjónustunnar. Þau snúa að atvinnu, fjárfestingu, samkeppnishæfni og byggðaþróun um land allt.

Fyrri hluti fundarins verður helgaður erindum frá Samtökum ferðaþjónustunnar og Markaðsstofum landshlutanna sem hverfast um ferðaþjónustu í viðkomandi kjördæmi. Þá mun Deloitte kynna niðurstöður á greiningu sem fyrirtækið hefur unnið fyrir SAF um áætlaðar skatta- og gjaldahækkanir á ferðaþjónustu sem liggja fyrir í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar.

Seinni hluti fundarins verður vettvangur beinna samtala við þingmenn kjördæmanna um þau mál sem nú eru efst á baugi hjá ferðaþjónustunni.

Fundurinn verður bæði staðfundur og í beinni útsendingu á vef SAF – saf.is. Þau sem hafa hug á að mæta á staðinn eru beðin um að skrá sig, ekki þarf að gera slíkt ef áhugasamir ætla að horfa á streymi en við hvetjum fólk til að setja fundinn í dagbókina engu síður.

Fundurinn er opinn öllum sem áhuga hafa á stöðu ferðaþjónustunnar og við vonumst til að sjá ykkur sem flest í Hjálmakletti í Borgarnesi þann 22. október!


Ferðaþjónustudagurinn er árlegur viðburður sem Samtök ferðaþjónustunnar standa fyrir og fram fer á haustin. Í ár er viðburðurinn með öðru sniði þar sem fundurinn er hluti af fundarröðinni Ferðaþjónustudagar 2026 en að þessu sinni standa SAF og Markaðsstofur landshlutanna að fundum um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru stjórnvöld helsta hindrun ferðaþjónustunnar?  Fundirnir fara fram á Selfossi, í Borgarnesi, á Akureyri og í Reykjavík en nánari upplýsingar um hvern viðburð má finna á vef SAF.

Lykilatriði

Organizers

  • SAF
  • Markaðsstofur landshlutanna

Staður

  • Hjálmaklettur
  • Borgarbraut 56
    Borgarnes, Iceland
    + Google Map