Námskeið í veðurlæsi

Hópbifreiðanefnd SAF býður upp á námskeið í veðurlæsi miðvikudaginn 28. október kl. 14.00-17.00. Námskeiðið fer fram í húsakynnum SAF í Borgartúni 35 en einnig er í boði að taka þátt á netinu í gegnum hlekk sem sendur verður á skráða þátttakendur. Námskeiðið er miðað að aðilum í rekstri hópbifreiða en á vel við alla sem starfa í ferðaþjónustu og þá sem skipuleggja ferðir um landið enda mikilvægt að geta lesið í veðuraðstæður til að bregðast við með viðeigandi hætti.
Leiðbeinandi á námskeiðinu er veðurfræðingurinn Einar Sveinbjörnsson og mun hann fara yfir hvað bílstjórar og forsvarsmenn hópbifreiðafyrirtækja þurf að hafa í huga og skoða vel í veðurfari áður en haldið er af stað í ferðir.
Námskeiðisgjald er 7.000 kr fyrir félagsmenn SAF og 10.000 kr fyrir aðra. Skráning fer fram í gegnum hlekkinn hér neðst („Website“) en nánari upplýsingar veitir Gunnar Valur Sveinsson, verkefnastjóri hópbifreiðanefndar SAF, í gegnum netfangið gunnar.valur@saf.is