Mótvindur: Eru stjórnvöld helsta hindrun ferðaþjónustunnar?

Samtök ferðaþjónustunnar og Samtök atvinnulífsins bjóða til fundar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar á Íslandi.
Fundurinn fer fram þann 18. nóvember í Sjálfstæðissalnum á Parliament Hótel í Reykjavík kl. 14:00-17:00
Fyrri hluta fundarins verður varið í kynningu á skattspori ferðaþjónustunnar árið 2025, auk umræðna um ástand og horfur í efnahagslegu og samfélagslegu tilliti.
Seinni hluti fundarins verður helgaður samtali við fulltrúa allra þingflokka.
Að dagskrá lokinni verður boðið til móttöku.
Fundurinn er seinast viðburður í fundarröðinni Mótvindur sem SAF og samstarfsaðilar hafa staðið fyrir um allt land í haust. Fundarröðin fer fram á mikilvægum tímapunkti en á Alþingi liggja nú fyrir stór mál sem snerta ferðaþjónustuna með beinum hætti og geta haft veruleg áhrif á rekstrarskilyrði greinarinnar og atvinnulíf um allt land. Þar má meðal annars nefna skattahækkanir á baðlón, krónutöluhækkanir á gistináttaskatti og innviðagjaldi ásamt frumvarpi til laga um náttúru- og innviðagjald, svokallaðan náttúrupassa. Þetta eru ekki aðeins málefni ferðaþjónustunnar. Þau snúa að atvinnu, fjárfestingu, samkeppnishæfni og byggðaþróun um land allt.
Nánari upplýsingar um dagskrá, sem og upptökur af fyrri fundum má finna hér.
Fundurinn verður bæði staðfundur og í beinni útsendingu á vef SAF – saf.is. Þau sem hafa hug á að mæta á staðinn eru beðin um að skrá sig, ekki þarf að gera slíkt ef áhugasamir ætla að horfa á streymi en við hvetjum fólk til að setja fundinn í dagbókina engu síður.
Fundurinn er opinn öllum sem áhuga hafa á stöðu ferðaþjónustunnar og við vonumst til að sjá ykkur sem flest í Sjálfstæðissalnum á Parliement Hótel í Reykjavík þann 18. nóvember.