Kjörnefnd auglýsir eftir framboðum

[:IS]Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar fer fram miðvikudaginn 21. mars á Radisson Blu Hótel Sögu í Reykjavík. Fagnefndarfundir fara fram daginn áður, eða þriðjudaginn 20. mars.
Samkvæmt lögum SAF skal stjórn samtakanna skipa kjörnefnd sem hefur það hlutverk að undirbúa og hafa yfirumsjón með stjórnarkjöri á aðalfundi samtakanna.
Í kjörnefnd sitja:

  • Ingibjörg G. Guðjónsdóttir, Íslenskum fjallaleiðsögumönnum, formaður – inga@mountainguides.is
  • Marín Magnúsdóttir, CP Reykjavík – marin@cpreykjavik.is
  • Sævar Skaptason, Hey Iceland – saevar@heyiceland.is

Kjörnefnd auglýsir hér með eftir framboðum til stjórnar og formanns SAF fyrir starfsárin 2018 – 2020. Formaður SAF er kjörinn til tveggja ára í senn. Samkvæmt lögum SAF skal stjórnarkjöri þannig háttað að annað hvert ár skal kjósa formann og þrjá meðstjórnendur en hitt árið eru hinir þrír meðstjórnendurnir í kjöri.
Samkvæmt lögum SAF ber kjörnefnd að tilkynna félagsmönnum tillögur sínar a.m.k. tveimur vikum fyrir aðalfund, en framboðsfrestur rennur út viku fyrir aðalfund, eða miðvikudaginn 14. mars nk.[:]

Tengdar fréttir

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til umhverfisverðlauna atvinnulífsins 2026. Verðlaunin verða veitt á Umhverfisdegi atvinnulífsins sem verður haldinn í ellefta sinn þriðjudaginn …

Daníel Pétur Daníelsson hlýtur lokaverkefnisverðlaun SAF og RMF fyrir meistararitgerðina Ræs! – Síld! Rannsókn á sambandi Síldarminjasafns Íslands við samfélagið í Siglufirði. …

Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar lýsir þungum áhyggjum af skaðlegum áhrifum boðaðs ótímabundins verkfalls flugvirkja hjá Icelandair. Ferðaþjónustufyrirtæki um allt land hafa þegar fengið …

Alls 71% landsmanna telja ferðaþjónustu hafa haft jákvæð áhrif á íslenskt samfélag. Viðhorfið mælist jafnframt mjög jákvætt í öllum landshlutum, en aðeins …

Verkefnastjórar SAF sóttu norrænan fund hópbifreiðasamtaka (Nordic Bus & Coach) í byrjun september sem fram fór í gamla höfuðstaðnum Kaupmannahöfn. Á fundinum …

Formaður og stjórnarfólk SAF afhentu Hönnu Katrínu Friðriksson, ferðamálaráðherra, ferðaþjónustukökuna með viðhöfn í atvinnuvegaráðuneytinu í morgun. Með kökunni fluttu fulltrúar SAF ráðherra …