Framboð til formanns og stjórnar SAF

[:IS]Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar fer fram miðvikudaginn 21. mars á Radisson Blu Hótel Sögu. Fagnefndarfundir fara fram daginn áður, eða þriðjudaginn 20. mars, á Radisson Blu Hótel Sögu.
Samkvæmt lögum SAF skal stjórn samtakanna skipa kjörnefnd sem hefur það hlutverk að undirbúa og hafa yfirumsjón með formanns- og stjórnarkjöri á aðalfundi samtakanna. Kjörnefnd skal tilkynna félagsmönnum tillögur sínar a.m.k. tveimur vikum fyrir aðalfund, eða 7. mars. Framboðsfrestur rennur út viku fyrir aðalfund, eða miðvikudaginn 14. mars.
Formaður SAF er kjörinn til tveggja ára í senn. Samkvæmt lögum SAF skal stjórnarkjöri þannig háttað að annað hvert ár skal kjósa formann og þrjá meðstjórnendur en hitt árið eru hinir þrír meðstjórnendurnir í kjöri.
Tveir aðilar hafa skilað inn framboði til formanns SAF fyrir starfsárið 2018-2020.
Frambjóðendurnar eru eftirtaldir í stafrófsröð:

  • Bjarnheiður Hallsdóttir, framkvæmdastjóri Kötlu DMI ehf.
  • Þórir Garðarsson, stjórnarformaður Gray Line Iceland

Fimm aðilar hafa skilað inn framboði til stjórnar SAF fyrir starfsárið 2018-2020. Þar sem einn af þeim stjórnarmönnum sem hlaut kosningu til tveggja ára á síðasta aðalfundi SAF hefur gefið kost á sér til formennsku í samtökunum verður stjórnarkjöri þannig háttað á aðalfundinum að 3 frambjóðendur verða kjörnir til tveggja ár og 1 frambjóðandi til eins árs.
Frambjóðendurnar eru eftirtaldir í stafrófsröð:

  • Björg Dan Róbertsdóttir, framkvæmdastjóri TREX ehf.
  • Gunnar Rafn Birgisson, eigandi Atlantik ferðaskrifstofu
  • Halldóra Gyða Matthíasdóttir Proppé, rekstrarstjóri sölu- og markaðssviðs Kynnisferða
  • Ívar Ingimarsson, stofnandi og framkvæmdastjóri ferðaþjónustunnar Óseyri
  • Ólöf R. Einarsdóttir, eigandi Mountaineers of Iceland

Nánari kynningu á frambjóðendum verður að finna á heimasíðu SAF – www.saf.is – eftir að framboðsfrestur hefur runnið út.
Framboðsfrestur rennur út viku fyrir aðalfund, eða kl. 10.00 miðvikudaginn 14. mars. Framboð skal senda á netfangið saf@saf.is eða með því að hafa samband við kjörnefndarmenn.
Kjörnefnd SAF:

[:]

Tengdar fréttir

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar 2026 fer fram fimmtudaginn 26. mars á Hilton Reykjavík Nordica. Faghópafundir aðalfundar verða haldnir fyrir hádegi og formlegur aðalfundur …

Hvernig upplifa gestir „gæði“ í dag og hvernig er hægt að endurspegla það í daglegu verklagi? Hvað skiptir þá mestu máli þegar kemur að upplýsingum, væntingum og þjónustu? Þessum spurningum verður svarað á …

Samtök ferðaþjónustunnar óska eftir þátttöku ferðaþjónustufyrirtækja á Íslandi í könnun um sjálfbærni-, gæða- og umhverfisvottanir í greininni. Sjálfbærni, umhverfismál og gæði hafa …

Menntadagur atvinnulífsins 2026 fer fram miðvikudaginn 11. febrúar kl. 13:00-16:00 á Hilton Reykjavík Nordica undir yfirskriftinni „Framtíðin kallar. Er menntakerfið að hlusta?“ …

Hópmálsókn evrópskra hótela gegn Booking.com hefur nú verið lögð formlega fram fyrir dómstól í Amsterdam. Málið snýr að kröfum um skaðabætur vegna …

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar 2026 fer fram fimmtudaginn 26. mars á Hilton Reykjavík Nordica. Skráning á aðalfundinn og nánari dagskrá verður kynnt er nær …