Margeir Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri bílaleigunnar Geysis

Um SAF

[:IS]

Margeir Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri bílaleigunnar Geysis.

Góður maður sem starfar innan ferðaþjónustunnar sagði við mig að það væri alltaf gott að félagsmenn SAF hefðu valkosti þegar kæmi að formannskjöri í félaginu.
Það hefur verið ánægjulegt að sitja í Bílaleigunefnd SAF undanfarin ár en jafnframt áhyggjuefni að á hverju einasta ári þegar kemur að fjárlagagerð ríkisstjórnarinnar að berjast þurfi harðri baráttu fyrir rekstrarumhverfi greinarinnar. Þrátt fyrir loforð um heildaryfirferð í mörg ár, hefur ekkert verið um efndir, sama hvaða flokkar skipa ríkisstjórn.
Vöxtur ferðaþjónustunnar undanfarin ár hefur verið með eindæmum en því miður verður það sama ekki sagt um arðsemi fyrirtækjanna sem starfa í greininni. Úr því þarf að bæta. Það gerist ekki nema allir standi saman, sama hvaða grein ferðaþjónustunnar þeir tilheyra. Hvað getum við sem samtök gert betur til að ná betri árangri og tryggja rekstrarumhverfi sem gerir ferðaþjónustunni allri kleift að blómstra? Eitt er klárlega það að öll fyrirtæki sem starfa í ferðaþjónustunni líti á það sem sjálfsagðan hlut að vera meðlimir og þátttakendur í starfi SAF. Við þurfum að læra af fortíðinni, lifa í núinu og skipuleggja til framtíðar. Saman. Arðsemi fyrirtækjanna tryggir bjarta framtíð Arðsemin fæst með sérhæfðu og betur menntuðu starfsfólki innan ferðaþjónustunnar, en í þeirri ánægjulegu þróun sem við höfum þegar séð í þeim málum þarf að fjárfesta.
Þar sem við búum á eyju, þurfum við að koma á fót verkefnum og fjárfesta þannig að ferðamenn geti komið inn til landsins bæði norðanlands og austan, rétt eins og fyrir sunnan. Stuðla þannig að betri dreifingu ferðamanna og arðsemi fyrir allar greinar ferðaþjónustunnar um landið allt.
Ég hef starfað í ferðaþjónustunni sem framkvæmdastjóri Bílaleigunnar Geysis frá árinu 2009. Áður var ég framkvæmdastjóri Golfklúbbs Reykjavíkur á árunum 1998 – 2006 og starfaði einnig sem forstöðumaður í Sparisjóðabankanum. Hef setið ýmist sem aðal- eða varamaður í Bílaleigunefnd SAF frá árinu 2011.
Áfram SAF.
Virðingarfyllst,
Margeir Vilhjálmsson[:]

Tengdar fréttir

Á Degi ábyrgrar ferðaþjónustu, sem fram fór í Grósku þann 21. apríl, voru hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu afhent við hátíðlega athöfn. Í ár …

Sigurvegarar forkeppni fyrir Norrænu nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu eru nú á leið til Grythyttan í Svíþjóð þar sem þeir keppa fyrir …

Undanfarin ár hefur Evrópusambandið unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System (EES). …

Þann 21. apríl kl. 14:00 verður Dagur ábyrgrar ferðaþjónustu haldinn í hátíðarsal Grósku. Viðburðurinn er vettvangur til að staldra við, horfa yfir …

Samhliða aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar sem fram fór 26. mars sl. var gefin út glæsileg ársskýrsla samtakanna fyrir starfsárið 2025 – 2026. Í …

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar var haldinn á Reykjavík Hilton Nordica fimmtudaginn 26. mars s.l. Fundurinn var afar fjölsóttur þrátt fyrir óstýrilátt veðurlag, enda …