Þórir Garðarsson, stjórnarformaður Gray Line Iceland

Um SAF

[:IS]

Þórir Garðarsson, stjórnarformaður Gray Line Iceland.

Ágæti félagsmaður Samtaka ferðaþjónustunnar.
Ég hef unnið innan samtaka okkar um árabil, síðustu þrjú ár sem varaformaður. Þar hef ég lagt mig allan fram um að sinna málefnum ferðaþjónustunnar með hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi. Áhuginn á að halda áfram að vinna að velgengni samtakanna og atvinnugreinarinnar er mikill og framboð mitt í embætti formanns endurspeglar það.
Ferðaþjónustan er umsvifamesta atvinnugrein landsins og sú sem skapar mestu gjaldeyristekjurnar. Áskoranir hennar eru margar; að starfa í sátt og samlyndi við land og þjóð, vinna með stjórnkerfinu að raunhæfum úrbótum og sjá rekstrarumhverfið þróast í rétta átt. Gera þarf nýja kjarasamninga síðar á árinu. SAF er þungamiðjan í þessari vinnu og ég mun eftir sem áður gefa henni allan þann tíma sem þarf.
Samtökin standa á tímamótum, þau fagna 20 ára afmæli í haust, nýr framkvæmdastjóri tekur við í sumar og fyrirsjáanleg er mikil endurnýjun í stjórninni. Til að halda ákveðinni samfellu í starfinu er skynsamlegt að næsti formaður samtakanna komi úr núverandi stjórn og hafi unnið með beinum hætti innan samtakanna. Á vefsíðu minni baklandid.is er að finna frekari upplýsingar um mig og áherslur mínar í þágu ferðaþjónustunnar.[:]

Tengdar fréttir

Nýtt raunfærnimat fyrir leiðsögufólk er nú komið í boði á Íslandi. Með raunfærnimatinu gefst starfandi leiðsögumönnum tækifæri til að fá færni sína …

Samtök ferðaþjónustunnar hafa skilað inn umsögn um tillögu fjármála- og efnahagsráðherra til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Í umsögninni gera SAF …

Fulltrúar SAF tóku þátt í 92. þingi HOTREC, samtaka hótel- og veitingaageirans í Evrópu, sem fram fór í Cork á Írlandi dagana …

Á Degi ábyrgrar ferðaþjónustu, sem fram fór í Grósku þann 21. apríl, voru hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu afhent við hátíðlega athöfn. Í ár …

Sigurvegarar forkeppni fyrir Norrænu nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu eru nú á leið til Grythyttan í Svíþjóð þar sem þeir keppa fyrir …

Undanfarin ár hefur Evrópusambandið unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System (EES). …