[:IS]
Ég býð fram starfskrafta mína til stjórnarsetu í SAF vegna áhuga míns og reynslu af störfum við ferðaþjónustu. Ferill minn innan greinarinnar hófst árið 2000 er ég fjárfesti ég ásamt félögum mínum í ALP bílaleigunni, sem í dag rekur Avis og Budget. Á árinu 2010 keyptum við svo Hertz á Íslandi og hef ég verið starfandi stjórnarformaður þessara fyrirtækja. Frá árinu 2000 hef ég setið í bílaleigunefnd SAF og tel ég því mig þekkja vel inniviði og starf samtakana.
Áherslumál mín eru:
- Góð samskipti milli íbúa landsins og ferðamanna
- Vinna gegn ósanngjarnri skattlagningu á greinina
- Bættar samgöngur og umferðaröryggi
- Stuðla að dreifingu ferðamanna um landið
- Auka umsvif innanlandsflugs
- Kynna betur gott starf ferðaþjónustunnar
[:]