Ívar Ingimarsson, stofnandi og framkvæmdastjóri ferðaþjónustunnar Óseyri

Um SAF

[:IS]

Ívar Ingimarsson, stofnandi og framkvæmdastjóri ferðaþjónustunnar Óseyri.

Ívar Ingimarsson heiti ég og er stofnandi og framkvæmdastjóri Ferðaþjónustunnar Óseyri á Egilsstöðum. Ég hef nú setið í stjórn SAF í eitt ár og hef haft mjög gaman af þeirri vinnu sem fer þar fram og hef áhuga á að starfa þar áfram fái ég til þess kosningu.
Það eru sex ár síðan ég flutti til Egilsstaða eftir að hafa verið í burtu frá Austurlandi í um 18 ár. Það var ekki síst ferðaþjónustunni að þakka að við fjölskylda gátum flutt aftur austur. Í ferðaþjónustunni sáum við tækifæri til að skapa okkar eigin atvinnu á okkar heimaslóðum.
Það er ekki spurning að ferðaþjónustan er búin að breyta Íslandi til hins betra, Ísland er miklu skemmtilegra land. Ferðaþjónustunni fylgir þjónusta, afþreying og tækifæri sem hækkar þjónustustig heimamanna og eykur lífsgæði og gerir stærri hluta Íslands eftirsóknarverðan til búsetu.
En miklum vexti og breytingum fylgja líka áskoranir og við verðum að vanda okkur, við verðum að passa upp á að ferðaþjónustan vaxi og dafni í sátt og samlyndi við Íslendinga og íslenska náttúru og sé sjálfbær. Við verðum að passa upp á að halda góðu sambandi við almenning og kynna atvinnugreinina ennþá betur fyrir honum.
Í mínum huga er augljóst að jafnvægi þarf að vera til staðar, það þarf að vera jafnvægi í fjölda ferðamanna sem koma til landsins og uppbyggingu innviða. Við verðum að tala fyrir betra aðgengi ferðamanna að öllu Íslandi en það dreifir álagi á náttúru og þjóð og styrkir atvinnugreinina til langtíma.
Við eigum að stuðla að og styðja við opnanir nýrra gátta inn í landið og við verðum að þrýsta á fjárfestingu í þeim efnum.
Ég bý út á landi og ég mun tala máli landsbyggðarinnar innan stjórnar SAF en ég átta mig líka á stóru myndinni og mun leggja mig fram við að líta eftir heildarhagsmunum greinarinnar gefist mér þess kostur.
Ívar Ingimarsson
Ferðaþjónustunni Óseyri[:]

Tengdar fréttir

Sigurvegarar forkeppni fyrir Norrænu nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu eru nú á leið til Grythyttan í Svíþjóð þar sem þeir keppa fyrir …

Undanfarin ár hefur Evrópusambandið unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System (EES). …

Þann 21. apríl kl. 14:00 verður Dagur ábyrgrar ferðaþjónustu haldinn í hátíðarsal Grósku. Viðburðurinn er vettvangur til að staldra við, horfa yfir …

Samhliða aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar sem fram fór 26. mars sl. var gefin út glæsileg ársskýrsla samtakanna fyrir starfsárið 2025 – 2026. Í …

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar var haldinn á Reykjavík Hilton Nordica fimmtudaginn 26. mars s.l. Fundurinn var afar fjölsóttur þrátt fyrir óstýrilátt veðurlag, enda …

Aðalfundur SAF 2026 fer fram fimmtudaginn 26. mars á Hilton Reykjavík Nordica og er skráning í fullum gangi. Í aðdraganda fundar auglýsti …