Tafir á innleiðingu persónuverndarlöggjafar

[:IS]Í sameiginlegri umsögn Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka atvinnulífsins, Samtaka iðnaðarins, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samorku, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka verslunar og þjónustu og Viðskiptaráðs Íslands voru gerðar alvarlegar athugasemdir við drög að frumvarpi til nýrra persónuverndarlaga.
Fulltrúar samtakanna fylgdu umsögninni eftir með fundi með Sigríði Á. Andersen dómsmálaráðherra og embættismönnum. Á þeim fundi kom fram vilji til að koma til móts við einhverjar athugasemdir samtakanna, en hvergi nærri allar.
Þá er mjög líklegt að innleiðingu á löggjöfinni verði ekki lokið fyrir 25. maí nk., þegar hún tekur gildi í Evrópusambandinu. Samtökin hafa varað við því að hætta gæti verið á því að einhver erlend fyrirtæki væru tregari til að ganga til samninga við íslensk fyrirtæki þar sem reynir á vernd persónuupplýsinga. Til þess að koma í veg fyrir það gæti þurft að útskýra fyrir þeim að persónuupplýsingar séu nægjanlega verndaðar hér þótt reglugerð Evrópusambandsins hafi ekki enn verið innleidd.
Samtökin lögðu áherslu á það á fundinum að ráðuneytið myndi setja upplýsingar um stöðu innleiðingarinnar á íslensku og ensku á vef sinn fyrir íslensk fyrirtæki og viðsemjendur þeirra.

[:]

Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …