Sambúð borgar og atvinnulífs

[:IS]

Oddvitar stærstu framboðanna í Reykjavík fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 26. maí næstkomandi, mætast á opnum fundi í Gamla bíó, miðvikudaginn 9. maí kl. 8.30-10.
Samtök atvinnulífsins, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu boða til opins umræðufundar þar sem rætt verður um sambúð borgar og atvinnulífs.

Þátt taka, Dagur B. Eggertsson, Samfylkingunni, Dóra Björt Guðjónsdóttir, Pírötum, Eyþór Arnalds, Sjálfstæðisflokknum, Ingvar Jónsson, Framsóknarflokknum, Líf Magneudóttir, Vinstri-grænum, Vigdís Hauksdóttir, Miðflokknum og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Viðreisn.

Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ, Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður SAF, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI spyrja frambjóðendur um helstu stefnumál þeirra gagnvart atvinnulífinu en Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, stýrir fundi.
Fundurinn er öllum opinn og aðgangur er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá þátttöku hér á vefnum. Boðið verður upp á létta morgunhressingu, kaffi og með því.

  • Skráning fer fram HÉR.

 

[:]

Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …