Forvarnir og fyrsta hjálp

[:IS]Samtök ferðaþjónustunnar standa fyrir fundi um bestu starfshætti varðandi öryggismál og viðbrögð við óvæntum atburðum sem kunna að koma upp í ferðaþjónustu.
Fundurinn fer fram mánudaginn 14. maí í Húsi atvinnulífsins og stendur á milli kl. 10 og 11.30.

  • Skráning fer fram HÉR.

Dagskrá:

  • Hvernig tryggjum við gott ferðalag?
    Karlotta Halldórsdóttir, verkefnastjóri forvarna hjá Sjóvá
  • Að vera viðbúinn – Öryggis- og viðbragðsáætlanir
    Jónas Guðmundsson, verkefnastjóri slysavarnarmála hjá Landsbjörg
  • Ábyrgð rekstraraðila og lagaramminn
    Helgi Jóhannesson, hæstaréttarlögmaður hjá LEX lögmannsstofu
  • Allt í volli, hvað svo?
    Karen Kjartansdóttir, ráðgjafi hjá Aton
    Særún Ósk Pálmadóttir, ráðgjafi hjá Aton
  • Umræður

Fundarstjóri verður Skapti Örn Ólafsson, upplýsingafulltrúi Samtaka ferðaþjónustunnar.

Eru félagsmenn hvattir til að mæta, hlýða á áhugaverð erindi og taka þátt í umræðum.

  • Skráning fer fram HÉR.

Þeir sem ekki hafa tök á að mæta á fundinn geta fylgst með honum í beinni útsendingu á heimasíðu Samtaka ferðaþjónustunnar – www.saf.is[:]

Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …