Samtök ferðaþjónustunnar fagna hertu eftirliti með heimagistingu

[:IS]Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar sendi frá sér eftirfarandi ályktun í dag, 15. júní 2018:
—

Samtök ferðaþjónustunnar fagna hertu eftirliti með heimagistingu

Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar fagnar sérstöku átaksverkefni um hert eftirlit með heimagistingu sem ríkisstjórnin samþykkti nýverið, og þakkar ráðherra ferðamála fyrir frumkvæði í málinu.
Samtök ferðaþjónustunnar hafa lengi bent á þörfina fyrir stóraukið eftirlit með leyfisskyldri gististarfsemi, enda er ljóst að umfang ólöglegrar gististarfsemi undir merkjum Airbnb og sambærilegra deilikerfa skekkir samkeppnisumhverfi ferðaþjónustufyrirtækja.
Það er ótækt að óábyrgir aðilar komist upp með að reka gistiþjónustu í samkeppni við ábyrgan atvinnurekstur án þess að skila sköttum og skyldum, en þannig fara forgörðum um 2 milljarðar króna sem annars gætu nýst til uppbyggingar innviða í ferðaþjónustu.
Brýnt er að fjármagnið sem lagt er í verkefnið skili sér einnig í eftirlit á ólöglegri gististarfsemi utan höfuðborgarsvæðisins.
Átaksverkefni um hert eftirlit er því mikilvægt fyrsta skref í því að koma ólöglegri gististarfsemi upp á yfirborðið.
15. júní 2018
Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar[:]

Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …