SAF mótmæla stórfelldum hækkunum

[:IS]

 
Samtök ferðaþjónustunnar sendi frá sér eftirfarandi ályktun í dag, 20. júlí 2018:
—

SAF mótmæla stórfelldum hækkunum

Samtök ferðaþjónustunnar mótmæla harðlega nýstaðfestum hækkunum þjónustugjalda í Vatnajökulsþjóðgarði og á Þingvöllum sem gerðar eru án fyrirvara og án nokkurs samráðs við samtökin.
Nýtilkynntar hækkanir á þjónustugjöldum innan Vatnajökulsþjóðgarðs ná allt að 80% og sýna algert skilningsleysi á starfsumhverfi og markaðsaðstæðum ferðaþjónustuaðila. Skammt er síðan þjónustugjöld innan þjóðgarðsins á Þingvöllum voru hækkuð um allt að 50% og í báðum tilfellum er tilkynnt um hækkanirnar fyrirvaralaust og án samráðs við hagsmunaaðila.
Það er með öllu ótækt að slíkar hækkanir séu tilkynntar fyrirvaralaust á sama tíma og samráðshópur ríkisstjórnarinnar, SAF og Sambands íslenskra sveitarfélaga um heildargreiningu á, og framtíðarskipan gjaldtöku opinberra aðila af ferðaþjónustu er að störfum á vettvangi Stjórnstöðvar ferðamála. Eðlilegt er að öllum ákvörðunum um hækkun gjalda eða nýja gjaldtöku á vettvangi ferðaþjónustu sé frestað a.m.k. þar til tillögur samráðshópsins liggja fyrir.
SAF minna á að núverandi ríkisstjórn hefur lagt áherslu á aukið samráð og samtal um málefni ferðaþjónustunnar, bæði í stjórnarsáttmála sínum og í samskiptum við SAF, sem er bæði nauðsynlegt og jákvætt. Fyrrnefndar hækkanir, aðdragandi þeirra og staðfesting er í fullkomnu ósamræmi við þá stefnu.
Í ljósi alls þessa er það eðlileg krafa SAF að viðkomandi hækkanir á gjaldskrám þjónustugjalda í Vatnajökulsþjóðgarði og á Þingvöllum verði dregnar til baka og öllum sambærilegum áformum frestað um óákveðinn tíma á meðan áhersla er lögð á það samráð um heildarskipan gjaldtöku af ferðaþjónustu sem þegar er hafið.
20. júlí 2018

[:]

Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …