[:IS]
Samtök ferðaþjónustunnar afhenda á ári hverju nýsköpunarverðlaun samtakanna fyrir athyglisverðar nýjungar og er markmiðið að hvetja fyrirtæki innan SAF til nýsköpunar og vöruþróunar. Kveðið er á um að heimilt sé að veita verðlaun vegna nýsköpunar allt að 300.000 krónum fyrir verkefni sem stjórn sjóðsins telur að skari fram úr hverju sinni.
Eru félagsmenn sem aðrir vinsamlega hvattir til að senda tilnefningar ásamt rökstuðningi til skrifstofu SAF til og með 3. nóvember á netfangið saf@saf.is eða með því að senda póst í Borgartún 35, 105 Reykjavík.
Nýsköpunarverðlaunin verða afhent nálægt stofndegi SAF sem er 11. nóvember en það verður auglýst síðar.
Nú er lag – tökum virkan þátt!
Mynd: Frá afhendingu nýsköpunarverðlauna SAF 2017. Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og hjónin Knútur Rafn Ármann og Helena Hermundardóttir eigendur Friðheima í Bláskógabyggð.

[:]