SAF auglýsa eftir lögfræðingi

[:IS]Samtök ferðaþjónustunnar óska eftir að ráða lögfræðing í hálft starf. Starfið krefst frumkvæðis og hæfileika til að laga sig að fjölbreyttum og krefjandi verkefnum. Við bjóðum upp á lifandi vinnustað ásamt ríku tækifæri til að móta eigið starfsumhverfi.
Helstu verkefni:

  • Gerð umsagna um þingmál, reglugerðir og þingsályktunartillögur.
  • Samskipti við stjórnvöld og hagsmunaaðila.
  • Ýmis nefndastörf og þátttaka í starfshópum á verkefnasviði samtakanna.
  • Lögfræðileg ráðgjöf gagnvart framkvæmdastjóra, skrifstofu og stjórn samtakanna sem og aðildarfyrirtækjum þeirra.
  • Skýrsluskrif og önnur útgáfustarfsemi.
  • Aðstoð við greiningarvinnu tengda starfsumhverfi aðildarfyrirtækja.
  • Önnur tilfallandi dagleg skrifstofustörf og lögfræðitengd verkefni.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Embættis- eða meistarapróf í lögfræði.
  • Reynsla af lögfræðistörfum.
  • Grunnþekking á rekstrarumhverfi fyrirtækja í atvinnurekstri.
  • Greiningarhæfileikar og geta til að setja sig hratt inn í ólík viðfangsefni.
  • Reynsla af störfum innan stjórnsýslunnar eða sambærilegum störfum er kostur.
  • Sérþekking á stjórnsýslurétti er kostur.
  • Afburða færni í mannlegum samskiptum.
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku.
  • Nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum.

Umsókn ásamt ferilskrá sendist á netfangið saf@saf.is
Umsóknarfrestur er til og með 27. september n.k.
Nánari upplýsingar veitir Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, í síma 690-9414.
[:]

Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …